Afmælisbörn 12. júní 2024

Hjalti Gunnlaugsson

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:

Jakob Smári Magnússon bassaleikari á stórafmæli en hann er sextugur á þessum degi. Jakob hóf sinn feril með hljómsveitum eins og Tappa tíkarass og Das Kapital en síðar lék hann með Síðan skein sól / SSSól, Grafík, Todmobile og Pláhnetunni svo einungis fáeinar af þeim þekktustu séu upptaldar. Jakob hefur ennfremur leikið á plötum þekktustu tónlistarmanna landsins og er t.d. oftar en ekki kallaður til þegar Bubbi Morthens gefur út plötu. Jakob hefur gefið út tvær bassajólaplötur sem vakið hafa athygli.

Hörpuleikarinn Elísabet Waage er sextíu og fjögurra ára í dag. Elísabet nam píanó- og hörpuleik hér heima og lauk svo einleikara- og hörpukennaraprófi í Hollandi, hún hefur jafnframt starfað hér heima og í Hollandi og leikið m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput hópnum, Kammersveit Reykjavíkur og fleiri sveitum auk þess að fást við kennslu. Þá er hörpuleik hennar að finna á fjölmörgum útgefnum plötum.

Hjalti Gunnlaugsson sem er líkast til þekktastur úr trúarlegum geira tónlistarinnar er sextíu og átta ára gamall á þessum degi. Hjalti hefur gefið út nokkrar plötur í eigin nafni en hann starfaði einnig hér áður fyrr sem gítarleikari hljómsveita eins og Námsfúsu Fjólu og Birtu, þá hefur hann jafnframt leikið með fjölda kristilegra hljómsveita og leikið og sungið inn á plötur.

Fróði Finnsson (f. 1975) hefði einnig átt afmæli á þessum degi en hann lést langt fyrir aldur fram árið 1994 úr krabbameini einungis nítján ára gamall. Á sínum stutta ferli lék Fróði á gítar með ógrynni hljómsveita en þeirra á meðal eru Sororicide (Infusoria), Clostrophobia under my foreskin, Pulsan, Texas Jesus, SSSpan, Torture og Xerox.

Vissir þú að Djúpárdrengir var söngkvartett sem starfaði innan Menntaskólans á Akureyri á sjöunda áratug síðustu aldar?