Hljómsveit Guðmundar H. Norðdahl (1951-52 / 1954-56)

Hljómsveit Guðmundar H. Norðdahl

Guðmundur H. Norðdahl var tónlistarmaður og tónlistarkennari sem starfaði víða um land, hann starfrækti og stjórnaði fjölmörgum hljómsveitum s.s. skóla- og lúðrasveitum – hér er þó aðeins fjallað um danshljómsveitir sem störfuðu í hans nafni.

Guðmundur var fyrst með hljómsveit á höfuðborgarsvæðinu undir nafninu Kvartett Guðmundar Norðdahl fljótlega eftir stríð en hún fær sérstaka umfjöllun hér á síðunni. Hann var svo um og upp úr 1950 í Vestmannaeyjum þar sem hann starfaði fyrst með Svavari Gests sem var þar með hljómsveit um tíma en Guðmundur stofnaði svo eigin sveit sem lék í Vestmannaeyjum veturinn 1951 til 52 í Samkomuhúsinu í Eyjum sem húshljómsveit. Þessa hljómsveit skipuðu Karl Lilliendahl gítarleikari, Höskuldur Þórhallsson trompetleikari, Árni Elfar básúnuleikari, Sigurður Þórarinsson trommuleikari, Höskuldur Stefánsson píanóleikari og Guðmundur sjálfur sem lék á klarinett. Mikil djassvakning var í Vestmannaeyjum um þetta leyti og litast skipan og tónlist sveitarinnar nokkuð af því.

Hljómsveit Guðmundar 1951 eða 52

Guðmundur hóf störf sem söngkennari við barnaskólann í Keflavík árið 1953 og átti eftir að taka þátt í að rífa upp tónlistarlífið þar í bænum með stofnun og stjórnun lúðrasveita og kóra, og á árunum 1954 til 56 var hann með eigin sveit sem lék mikið í Ungó í Keflavík en einnig t.a.m. í Þórscafe í Reykjavík. Litlar upplýsingar er að finna um þessa sveit Guðmundar en meðlimir þessarar sveitar voru líkast til mestmegnis úr Reykjavík upphaflega en eftir því sem leið á komu Keflvíkingar við sögu hennar – fyrir liggur að Karl Lilliendahl var einn meðlima sveitarinnar um tíma og líklega einnig Baldur Júlíusson (faðir Þóris og Maríu Baldursbarna). Fjölmargir þekktir söngvarar og söngkonur sungu með sveitinni meðan hún starfaði en söngvarar voru á þeim árum lausráðnir jafnvel stök kvöld með hljómsveitunum og voru aldrei hluti af hljómsveitinni – hér má nefna Sigurð Ólafsson, Ingibjörgu Þorbergs, Hauk Morthens og Sigfús Halldórsson sem öll komu við sögu sveitarinnar meðan hún starfaði.

Guðmundur bjó u.þ.b. áratug í Keflavík en flutti þá á höfuðborgarsvæðið og var þar þar til á síðari hluta áttunda áratugarins þegar hann flutti norður í S-Þingeyjarsýslu þar sem hann var áberandi í tónlistarskólastarfi og annarri tónlistarstarfsemi, þar stjórnaði hann m.a. harmonikkuhljómsveit innan Harmonikufélags Þingeyinga en engar upplýsingar er að finna um skipan þeirrar sveitar undir stjórn Guðmundar. Á þeim árum var hann reyndar löngu hættur að leika með danshljómsveitum og ekki voru fleiri sveitir starfræktar í hans nafni svo kunnugt sé.