Afmælisbörn 31. júlí 2024

Rut L. Magnússon

Glatkistan hefur fimm afmælisbörn á skrá sinni á þessum degi:

Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari er sjötíu og níu ára í dag. Rut nam sína tónlist fyrst hér heima en síðan í Svíþjóð og Belgíu. Hún hefur starfað sem konsertmeistari m.a. með Karmmersveit Reykjavíkur en hefur einnig starfað í Sinfóníuhljómsveit Íslands, Pólýfónkórnum og með Bachsveitinni í Skálholti svo dæmi séu tekin. Rut hefur einnig haldið fjölda einleikstónleika, gefið út sólóplötur og í félagi með öðrum, auk þess að kenna við Tónlistarskólann í Reykjavík.

Önnur Rut, söngkonan og kórstjórnandinn Rut (Little) Magnússon átti einnig afmæli þennan dag. Rut (1935-2010) kom upphaflega frá Englandi, giftist íslenskum tónlistarmanni (Jósef Magnússyni) og starfaði hér um árabil. Hún tók þátt í uppfærslum á ýmsum óperuverkum og öðrum þekktum verkum, stjórnaði t.a.m. Drengjakór Sjónvarpsins, Háskólakórnum, Liljukórnum og Hljómeyki svo nokkrir kórar séu nefndir, og kenndi jafnframt söng við Söngskólann og Tónlistarskólann í Reykjavík.

Tónlistarmaðurinn Daníel Friðjónsson sem upphaflega kemur frá Egilsstöðum, er fjörutíu og sex ára gamall á þessum degi. Daníel sem fæst dags daglega við tónlistarkennslu hefur leikið á trommur með hljómsveit föður síns, Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar og inn á nokkrar plötur með þeirri sveit en hann hefur einnig starfað m.a. með Tríói Rutar Guðmundsdóttur. Daníel hefur jafnframt samið nokkuð af tónlist.

Eyfirðingurinn Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur er sextíu og fimm ára gamall í dag en hann söng og lék á bassa, hljómborð og saxófón með ýmsum hljómsveitum á því tímabili sem kennt er við pönkið. Meðal sveita sem hann lék með eru Taugadeildin, Snillingarnir, Zwingin‘ zombies, Þetta er bara kraftaverk, Anna og grafararnir/Handan grafar og Q4U.

Og að síðustu er hér nefndur saxófónleikarinn Eyjólfur Þorleifsson sem á fimmtíu og eins árs afmæli á þessum degi. Auk þess að hafa gefið út sólóplötu og leikið á plötum fjölda annarra tónlistarmanna hefur Eyjólfur leikið með sveitum eins og Jagúar, Tríói Björns Thoroddsen, Tríói Jóns Rafnssonar og BonSom, jafnframt því að starfrækja eigin djassbönd.

Vissir þú að árið 1977 voru tvö þjóðhátíðarlög í tilefni af því að þjóðhátíð var aftur haldin í Herjólfsdal eftir gos?