
Bragi Ólafsson
Afmælisbörn í fórum Glatkistunnar eru sex talsins að þessu sinni:
Bragi Ólafsson bassaleikari og rithöfundur er sextíu og tveggja ára gamall í dag. Upphaf ferils Braga á tónlistarsviðinu miðast við pönkið en hann var bassaleikari Purrks Pillnikk og síðan nokkurra náskyldra hljómsveita s.s. Pakk, Stuðventla, Brainer, Amen, Bacchus og P.P. djöfuls ég, áður en hann gekk til liðs við Sykurmolana sem varð hans síðasta sveit áður en hann einbeitti sér að rithöfundarferli sínum.
Karin Sveinsdóttir söngkona er tuttugu og átta ára gömul í dag, hún vakti nokkra athygli með dúettnum Young Karin fyrir fáeinum árum síðan en það samstarf hófst eftir að hún hafði tekið þátt í söngkeppni Menntaskólans við Hamrahlíð, sá dúett gekk upphaflega undir nafninu Highlands. Hún hefur einnig starfað með hljómsveitinni Sxsxsx.
Karen Janine Sturlaugsdótir blásari og tónlistarkennari fagnar sextíu og átta ára afmæli á þessum degi. Karen hefur leikið m.a. á trompet og horn, hún var t.d. ein af Wonderbrass dömunum í Volta-túr Bjarkar Guðmundsdóttur og lék einmitt á þeirri plötu en hefur jafnframt leikið á fjölda annarra platna. Þá hefur hún stjórnað hljómsveitum og kórum
Einar Bragi Bragason saxófónleikari (f. 1965) hefði átt afmæli í dag en hann lést 2019, hann starfaði með ótal hljómsveitum og tónlistarmönnum í gegnum tíðina, frægust þeirra er án efa Stjórnin en einnig má nefna Sumargleðina, Hljómsveit Hauks Morthens, Afsakið, Þáþrá og Babadú svo einungis örfáar séu nefndar. Einar Bragi starfaði lengi sem skólastjóri Tónlistarskólans á Seyðisfirði og einnig á Vopnafirði, hann sendi frá sér jafnframt eina sólóplötu.
Ólafur Gaukur Þórhallsson tónlistarmaður átti einnig afmæli á þessum degi en hann lést 2011. Ólafur Gaukur (f. 1930) var kunnur gítarleikari, starfaði í og starfrækti fjöldann allan af hljómsveitum, auk þess að semja tónlist og texta, útsetja og annast upptökur. Hann starfrækti ennfremur gítarskóla og plötuútgáfu. Ólafur Gaukur hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 2007.
Höskuldur (Þórhallur Lagiger) Þórhallsson trompetleikari átti þennan afmælisdag en hann lést árið 1979. Höskuldur (f. 1921) lék bæði létta og klassíska tónlist og starfaði með hljómsveitum eins og Danshljómsveit Þóris Jónssonar, Hljómsveit Guðjóns Pálssonar, Hljómsveit Jónatans Ólafssonar, Hljómsveit Karls Jónatanssonar, Hljómsveit Reykjavíkur og Hljómsveit FÍH svo nokkur dæmi séu nefnd.
VIssir þú að Árni Egilsson sem búið hefur í Bandaríkjunum um langt árabil var prófessor í kontrabassaleik?














































