Hljómsveitin The Sweet Parade hefur sent frá sér smáskífuna Desperate love en skífan er sú ellefta í röðinni frá því sveitin var stofnuð síðla árs 2020, sú síðasta á undan kom út í júlí sl. og bar nafnið Luck.
The Sweet Parade en eins manns sveit Snorra Gunnarssonar en hann hefur komið víða við í íslenskri tónlist, m.a. leikið á gítar með hljómsveitum eins og Soma, Stolið og Fjöll (áður Slow mountains). Tónlist The Sweet Parade hefur verið lýst sem blöndu af indie / folk / alternative músík.
Desperate Love er komin inn á helstu tónlistarstreymisveitur og hér má heyra lagið á Spotify.














































