Hljómsveit Jóns Árnasonar (um 1950-60)

Jón Árnason á Syðri-Á í Ólafsfirði var kunnur harmonikkuleikari, laga- og textasmiður sem fór víða um og lék á dansleikjum á árum áður. Hann mun jafnframt hafa starfrækt hljómsveit í eigin nafni um árabil en ekki liggja fyrir upplýsingar um hvenær það var eða yfir hversu langt tímabil það náði, engar upplýsingar að finna um meðspilara Jóns í þeirri spilamennsku og er því hér með óskað eftir þeim.

Hljómsveit Jóns á Syðri-Á mun hafa verið fyrsta hljómsveitin sem starfaði í Ólafsfirði en hún lék mestmegnis á dansleikjum í heima- og nágrannasveitum s.s. á Ólafsfirði, Dalvík og Svarfaðardalnum.