Afmælisbörn 16. september 2024

Rúnar Guðjónsson

Fjögur afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni:

Sjálfur orkuboltinn Ómar Ragnarsson á afmæli en hann er áttatíu og fjögurra ára gamall í dag. Fáir hafa komið jafn víða við í lífinu og Ómar en hann hefur fengist við fréttamennsku, þáttagerð, rallakstur, flugmennsku, skemmtanahald og tónlist auk þess að vera einn þekktasti náttúruverndarsinni okkar Íslendinga. Ómar hefur sungið á tugum hljómplatna, samið texta og tónlist, auk söngskemmtana í gegnum tíðina. Tugir platna hafa komið út í nafni Ómars.

Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari, organisti og söngkona fagnar fimmtíu og sjö ára afmæli á þessum degi. Aðalheiður hefur starfað með fjölda hljómsveita, kórum og sönghópum í gegnum tíðina og hér má nefna Six pack latino, Fjórar klassískar, Combó Jóhönnu Þórhalls, Léttsveit Reykjavíkur, Espacio, Reykjavík 5, Bjargræðiskvartettinn og Skátakórinn svo nokkur nöfn séu nefnd en hún hefur jafnframt komið við sögu á ýmsum útgefnum hljómplötum.

Söngvarinn Rúnar (Guðjón) Guðjónsson fagnar áttatíu og fjögurra ára afmæli sínu á þessum degi. Rúnar söng með fjöldanum öllum af hljómsveitum á sínum yngri árum og hér má nefna sveitir eins og Hljómsveit Hinriks Konráðssonar, Hljómsveit Árna Scheving, Hauka, J.J. Quintet, Hljómsveit Magnúsar Péturssonar, Sóló sextett og Hljómsveit Guðmundar Sigurjónssonar svo aðeins fáeinar séu nefndar.

Að síðustu er hér nefndur Jón Ólafsson frá Kirkjulæk í Fljótshlíð, hann hefði einnig átt afmæli í dag en hann lést 2008 aðeins fimmtíu og þriggja ára gamall. Jón (fæddur 1955) var í hljómsveitinni Hjónabandinu ásamt eiginkonu sinni og fleirum en tvær plötur komu út með sveitinni, þar af önnur sem gefin var út í minningu Jóns. Hann var einnig einn af Öðlingunum, litlum sönghópi sem starfar innan Karlakórs Rangæinga.

Vissir þú að eitt sinn starfaði hljómsveit á Vopnafirði undir nafninu Gneistar?