Harmonikkuleikarinn og hjúkrunarfræðingurinn Jóna Einarsdóttir starfrækti hljómsveit í eigin nafni um nokkurra ára skeið innan Harmonikufélags Reykjavíkur á tíunda áratug síðustu aldar.
Sveitin var stofnuð vorið 1991 og var fjögurra manna, sjálf lék Jóna á harmonikku en auk hennar voru í sveitinni gítarleikari, trommuleikari og söngkona sem vantar upplýsingar um – hugsanlega var söngkonan Kristrún Sigurðardóttir sem söng með sveitinni árið 1995 ásamt Birni Þorgeirssyni. Hljómsveitin mun einnig hafa gengið undir nafninu Harmonía um tíma en var yfirleitt frekar kölluð Hljómsveit Jónu Einarsdóttur.
Hljómsveit Jónu lék að því er virðist mestmegnis á tónleikum og dansleikjum innan Harmonikufélags Reykjavíkur en sjálf lék Jóna ein síns liðs mikið á krám og því er ekkert ólíklegt að sveitin hafi einnig troðið upp á þess konar stöðum. Sveitin starfaði til ársins 1999 að minnsta kosti en óskað er eftir frekari upplýsingum um hana.














































