
Björn Steinar Sólbergsson
Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi:
Akureyringurinn Jón (Arnar) Freysson hljómborðsleikari er sextugur og fagnar stórafmæli í dag. Jón sem er menntaður tölvunarfræðingur varð þekktur þegar hann lék með Bara flokknum á sínum tíma en lék einnig með sveitum eins og Skræpótta fuglinum og Nautsauga en með síðarnefndu sveitinni var hann reyndar gítarleikari. Jón hefur minna verið viðloðandi tónlist síðustu árin.
Björn Steinar Sólbergsson organisti fagnar sextíu og þriggja ára afmæli sínu á þessum degi. Björn Steinar er menntaður frá Tónskóla þjóðkirkjunnar auk þess sem hann nam á Ítalíu og Frakklandi en hann starfaði lengi sem organisti á Akureyri, hann er í dag organisti í Hallgrímskirkju. Björn Steinar hefur jafnframt leikið á tónleikum víða, bæði hér heima og erlendis og auk þess leikið inn á fjölda útgefinna platna og m.a. sem komið hafa út í hans nafni.
Sigtryggur Guðlaugsson tónlistarfrömuður (1862-1959) átti afmæli á þessum degi. Sigtryggur var lengi prestur og organisti á Núpi í Dýrafirði þar sem hann átti stóran þátt í stofnun héraðsskólans, hann kenndi söng, stofnaði söngfélög, var organisti, safnaði þjóðlögum og var auk þess tónskáld og gegndi jafnan mikilvægu hlutverki í menningarmálum þar sem hans naut við.
Benedikt (Árnason) Elfar tenórsöngvari hefði átt afmæli þennan dag. Hann fæddist 1892 á Eyjafjarðarsvæðinu og ólst upp þar en fluttist suður til Reykjavíkur á unglingsárum. Þar nam hann guðfræði og söng en hætti síðar í guðfræðinni til að fara erlendis til frekara söngnáms í Danmörku og síðar Þýskalandi og Noregi. Að námi loknu söng hann víða hér heima á tónleikum (og erlendis) en hann kenndi einnig söng og stýrði kórum, hann rak ennfremur hljóðfæraverslun og varð líklega fyrstur hérlendis til að hafa tónlist í hátalara utan dyra við verslun sína. Benedikt Elfar lést 1960.
Vissir þú að hljómsveitin Mínus hét upphaflega Mongolitans?














































