Hljómsveitakeppnin í Atlavík [tónlistarviðburður] (1982-88)

Atlavík

Hljómsveitakeppnin í Atlavík um verslunarmannahelgi var lengi vel þekktasta keppni sinnar tegundar en nokkrar sveitir náðu töluverðum vinsældum eftir sigur í henni. E.t.v. mætti segja að gróskan sem var í íslenskri tónlist í kjölfar pönkbylgjunnar um 1980 hafi skilað sér í keppnina því ógrynni landsbyggðasveita spruttu fram á sjónarsviðið og vildu spreyta sig á keppnissviðinu í Atlavík. Í kjölfarið hófst reyndar eitthvað sem kalla mætti blómaskeið hljómsveitakeppna.

Útihátíðir höfðu verið haldnar í Atlavík um margra ára skeið um verslunarmannahelgina en árið 1982 var hin margfræga hljómsveitakeppni haldin í fyrsta sinn, hátíðin var í höndum UÍA (Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands). Stuðmenn, sem voru aðal hljómsveit hátíðarinnar önnuðust framkvæmd keppninnar og utanumhald en þess má geta að á þessari hátíð voru einmitt nokkur atriði úr Stuðmanna-kvikmyndinni Með allt á hreinu, skotin.

Í hljómsveitakeppninni var keppt um titilinn „Hljómsveitin ´82“ en hún átti sér fyrirmynd í þeim keppnum sem haldnar höfðu verið í Húsafelli í kringum 1970. Fyrirkomulagið var með þeim hætti öll árin sem Atlavíkurkeppnin var haldin, að á laugardeginum var undankeppni en úrslit á sunnudeginum, úrslitin voru í höndum áhorfenda í undankeppninni en sérstök dómnefnd kom svo einnig inn í úrslitin.

Það var hljómsveitin Lola frá Seyðisfirði sem sigraði þessa fyrstu keppni og hlaut hún í verðlaun upptökur og útgáfu á tveggja laga smáskífu sem kom svo út um haustið, Kvöldverður á Nesi og Aþena höfnuðu í öðru og þriðja sæti keppninnar en alls tóku þrettán sveitir þátt í henni – þeirra á meðal voru sveitir eins og Skriðjöklar, Pungo & Daisy (með Skúla Gautason innanborðs) og Gaukar sem skörtuðu Agli Helgasyni síðar fjölmiðlamanni. Keppnin þótti heppnast afar vel og vakti mikla athygli, og ekki er ólíklegt að Jóhann G. Jóhannsson sem nokkru áður hafði stofnað SATT samtökin hafi fengið hugmyndina að Músíktilraunum eftir Atlavíkurhátíðina en þær voru haldnar í fyrsta sinn haustið 1982.

Ringo Starr afhendir hljómsveitinni Fásinnu verðlaun keppninnar 1984.

Til marks um athyglina sem keppnin fékk árið 1982 og e.t.v. einnig um sjálfsbjargarviðleitni því keppnissveitirnar hlutu frían aðgang að Atlavíkurhátíðinni, að þá voru skráðar tuttugu sveitir til leiks árið eftir (1983) en reyndar mættu ekki nema fimmtán þeirra. Þeirra á meðal voru Skriðjöklar í annað sinn en sú sveit komst í úrslit ásamt Aþenu og Dúkkulísunum en viðurkenndu síðar að hafa svindlað því þeir komust yfir gæslubol og einn þeirra íklæddur honum safnaði saman atkvæðaseðlum meðal hátíðagesta og grisjaði úr bunkanum eftir hentugleika. Sveitin hafnaði í þriðja sæti en Dúkkulísurnar frá Egilsstöðum sigruðu keppnina og svo Músíktilraunir litlu síðar.

Atlavíkurkeppnin var haldin í þriðja sinn sumarið 1984 og héldu Stuðmenn utan um keppnina sem fyrr, að þessu sinni var öllu til tjaldað því mótshaldarar bjuggust við mikilli samkeppni frá hinni svokölluðu Viðeyjarhátíð sem þó varð aldrei nein samkeppni því aðeins fáeinar hræður sóttu Viðey heim. Þess vegna höfðu Stuðmenn fengið til landsins sjálfan Ringo Starr til að m.a. afhenda fyrstu verðlaun í hljómsveitakeppninni sem að þessu sinni féllu í skaut hljómsveitarinnar Fásinnu frá Egilsstöðum og Eiðum, Coma lenti í öðru sæti og Súellen í því þriðja – meðal annarra keppnissveita þetta sinni má nefna Bandalagið, Hross í haga, Special treatment (síðar Greifarnir) og Skriðjöklar sem þarna voru að keppa í þriðja sinn, alls voru hljómsveitirnar sautján talsins.

Árið 1985 var hljómsveitakeppni Atlavíkur haldin í fjórða sinn og loksins náðu Skriðjöklar að bera sigur úr býtum og fengu peningaverðlaun en slík verðlaun höfðu einnig verið árið á undan. Fyrirkomulag keppninnar var enn með sama hætti og ásamt Skriðjöklum kepptu í úrslitum á sunnudeginum hljómsveitirnar Coma, Special treatment og Súellen sem allar höfðu verið í keppninni árið 1984. Sextán hljómsveitir kepptu að þessu sinni en Atlavíkurhátíðin þetta árið varð sú stærsta sem haldin var, með um sjö þúsund gesti.

Frá Atlavíkur-hátíðinni 1984

Engin hátíð var haldin í Atlavík árið 1986 en sú ákvörðun var tekin til að hlífa gróðri á svæðinu, hún var hins vegar til staðar ári síðar en þá voru engir Stuðmenn í Atlavík því þeir voru þá aðal númerið á stórri útihátíð í Húsafelli og stjórnuðu reyndar sambærilegri hljómsveitakeppni þar. Skriðjöklar sáu hins vegar um framkvæmd Atlavíkurkeppninnar en sveitin var þá orðin meðal vinsælustu hljómsveita landsins, verðlaunin voru í formi 50 tíma í hljóðveri hljómsveitarinnar en það var hljómsveitin Efri deild alþingis sem sigraði, fimmtán sveitir voru skráðar til leiks í keppninni og þeirra á meðal voru Thorlacius, The Smjör, Blóðrefill, Kongóbandið, Taktík og Fagin.

Árið 1987 reyndist verða síðasta skiptið sem hljómsveitakeppnin var hluti af Atlavíkurhátíðinni, ári síðar voru Stuðmenn aftur komnir til sögunnar sem aðal númerið en í stað hljómsveitakeppninnar var nú komin söngvarakeppnin Látúnsbarkinn sem fyrst hafði verið haldin árið á undan. Hátíðin reyndist síðan sú síðasta í röðinni því ekki voru fleiri Atlavíkurhátíðir haldnar, tilraun var gerð með Eiðahátíð og síðar kom Neistaflugið í Neskaupstað til sögunnar en dagar útihátíða í Atlavík voru liðnir.

Atlavíkurhátíðirnar fæddu af sér ótal þekktar austfirskar hljómsveitir sem gerðu góða hluti og í raun mætti segja að slík bylgja hafi náð yfir allt norðan- og austanvert landið með hljómsveitum eins og Dúkkulísunum, Lolu, Súellen, Greifunum, Skriðjöklum og Fásinnu – andi sumra þeirra sveita lifir enn.