Afmælisbörn 10. október 2024

Sallý Rósinkranz

Tvö tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag:

Hilmar Jensson gítarleikari er fimmtíu og átta ára gamall á þessum degi. Hilmar sem hefur síðustu árin fyrst og fremst starfað í djassgeiranum hefur gefið út nokkrar sólóplötur og með hljómsveitunum Tyft og Mógil en einnig hefur hann gefið út plötur í samstarfi við Skúla Sverrisson, Jóel Pálsson og fleiri. Áður hafði Hilmar starfað í hljómsveitum eins og The Spiders og Stjórninni en hann var einmitt einn af stofnmeðlimum síðast töldu sveitarinnar.

Þá er sópran söngkonan Sigurlaug Rósinkranz áttatíu og níu ára gömul í dag. Sigurlaug nam hér heima og í Austurríki en vakti fyrst athygli fyrir hlutverk í Brúðkaupi Fígarós í Þjóðleikhúsinu en það vakti miklar deilur á sínum tíma. Síðar bjó hún í Svíþjóð og Bandaríkjunum þar sem hún er ennþá, en hún hefur gefið út nokkrar plötur með söng sínum.

Vissir þú að fjögurra laga smáskífa með hljómsveitinni múm var hljóðrituð fyrir útvarpsþátt John Peel á BBC?