
Sigríður Ragnarsdóttir
Tvö afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar að þessu sinni:
Grétar Geirsson harmonikkuleikari í Áshól er áttatíu og sjö ára gamall í dag. Grétar sem er með þekktari harmonikkuleikurum landsins hefur verið framarlega í félagsstarfi þeirra en einnig má heyra leik hans á fjölmörgum plötum s.s. Harmonikkufélags Rangæinga, Karlakórs Rangæinga, Félags harmonikkuunnenda, Sigfúss Ólafssonar, Ara Jónssonar og fjölmargra annarra. Hann lék á árum áður með fjölda hljómsveita og má þar nefna Hljómsveit Óskars Guðmundssonar, Hljómsveit Aage Lorange, Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar, Káta félaga og Heiðanna ró, svo nokkur dæmi séu nefnd. Grétar hefur einnig starfað sem tónlistarkennari og organisti.
Sigríður Ragnarsdóttir tónlistarkennari, organisti, píanóleikari og skólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði átti einnig þennan afmælisdag en hún lést sumarið 2023. Sigríður, sem var fædd 1949 á Ísafirði en nam tónlist í Reykjavík og í Bandaríkjunum kom að mörgum tónlistartengdum verkefnum á Vestfjörðum og telst til framámanna í tónlistarmálum á svæðinu enda hlaut hún ýmsar viðurkenningar fyrir menningarstarf sitt.
Vissir þú að Kiriyama family sigraði í hljómsveitakeppni sem haldin var af Ford fyrirsætukeppninni árið 2011?














































