
Hljómsveit Óskars Ósberg
Hljómsveit Óskars Ósberg (einnig nefnd Danshljómsveit Óskars Ósberg) var þekkt í skemmtanalífinu á Akureyri um miðja síðustu öld en þessi sveit virðist hafa starfað á árunum 1946 til 1950 að minnsta kosti, lék þá víða í samkomuhúsum Akureyrar og var líklega um tíma húshljómsveit á Hótel KEA – sveitin fór einnig til að leika á dansleikjum á Siglufirði og sjálfsagt víðar um norðanvert landið.
Svo virðist sem meðlimir sveitarinnar hafi verið Árni Ingimundarson píanóleikari, José Riba klarinettuleikari, Mikael Jónsson trommuleikari og hljómsveitarstjórinn sjálfur Óskar Ósberg (Óskar Sigurgeirsson Ósberg) en hann lék á saxófón. Á einhverjum tímapunkti mun sveitin hafa verið kvintett en óskað er eftir frekari upplýsingum um þessa hana.














































