
Hljómsveit Óskars Guðmundssonar
Óskar Guðmundsson á Selfossi rak um árabil vinsæla danshljómsveit sem lék á hundruðum dansleikja í Árnes- og Rangárvallasýslum á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, hróður sveitarinnar barst reyndar mun víðar og hún fór stundum út fyrir yfirráðasvæði sitt á Suðurlandi og lék þá í öðrum landsfjórðungum.
Hljómsveit Óskars Guðmundssonar var stofnuð árið 1952 og var lengst af skipuð sama kjarnanum. Reyndar liggur ekki fyrir hverjir skipuðu hana í upphafi með Óskari nema að Sigurbjörn Ingþórsson mun hafa verið einn þeirra og lék líklega á bassa. Annars var sveitin lengi skipuð þeim Þorsteini Guðmundssyni (Steina spil) söngvara, harmonikku- og saxófónleikara, Ásgeiri Sigurðssyni klarinettuleikara, Lofti Loftssyni bassaleikara, Leifi Guðmundssyni gítarleikara og Óskari sem lék á trommur. Fjölmargir söngvarar komu jafnframt fram með sveitinni á fyrstu árum hennar og má þar nefna Jónu Gunnardóttur, Sigurgeir Scheving, Diddu Jóns (Þuríði Jónsdóttur), Alfreð Clausen, Svanhvíti Tryggvadóttur, Svein Tómasson, Önnu Vilhjálms, Sigurdór Sigurdórsson og Emmy Þórarins, þá sungu Leiksystur eitthvað með sveitinni á dansleikjum hennar.
Fyrstu árin lék Hljómsveit Óskars Guðmundssonar mikið í Selfossbíói og naut þar gríðarmikilla vinsælda, og síðar færði sveitin út kvíarnar og lék þá víða bæði í Árnes- og Rangárvallasýslum og má segja að hún hafi verið einráð á markaðnum á því svæði um tíma – hér má nefna samkomustaði eins og Hellubíó, Félagslund, Álfaskeið, Þrastaskóg, Þjórsárver, Aratungu, Flúði, Hvol og miklu fleiri. Og sveitin fór reyndar töluvert út fyrir Suðurlandið því hún lék bæði fyrir norðan og vestan, t.a.m. í Húnaveri um verslunarmannahelgina 1960.

Hljómsveit Óskars á hlaupum yfir Ölfusárbrú
Grétar Geirsson harmonikkuleikari hafði eitthvað leyst af í sveitinni en hann kom svo inn í hana sem fastur meðlimur árið 1962 og var í þrjú ár með þeim félögum, um svipað leyti varð Jakob Ó. Jónsson fastráðinn söngvari sveitarinnar og með hann innanborðs bauðst sveitinni að hljóðrita tólf laga plötu – hængur var á að þeir þurftu að fara erlendis til þess og Jakob mun ekki hafa fengið sig lausan svo það féll um sjálft sig. Það verkefni var komið það langt á veg að sveitin hafði æft tólf laga prógramm í því skyni og var þar m.a. að finna lög eftir Loft og Ásgeir.
Árið 1963 komu söngvararnir Elín Bachmann Haraldsdóttir og Arnór Þórhallsson inn í sveitina í stað Jakobs, og einnig söng Bertha Biering eitthvað með sveitinni um það leyti. 1965 hætti Steini spil í hljómsveitinni en hann stofnaði um það leyti eigin sveit sem átti eftir að starfa um árabil. Þegar Arnór yfirgaf sveitina og söng um tíma með Mánum kom Jakob aftur inn í hana og starfaði með sveitinni þar til hún hætti. Þess má geta að hljómsveit Þorsteins lék á vígsludansleik félagsheimilisins Borgar í Grímsnesi árið 1966.

Hljómsveit Óskars Guðmundssonar við Hvol
Árið 1968 lék sveitin inn á plötu Stúlknakórs Gagnfræðaskólans á Selfossi en sá kór sendi frá sér breiðskífu undir merkjum Hljómplötuútgáfunnar þar sem önnur hliðin hafði að geyma söng við undirleik Gísla Magnússonar en hin plötuhliðin innihélt létt jólalög við undirleik sveitarinnar, meðal laganna er að heyra sígildar útgáfur af lögunum Ég sá mömmu kyssa jólasvein, Snæfinnur snjókarl og Þrettán dagar jóla en það var í fyrsta sinn sem þau lög komu út á plötum hérlendis. Platan er fyrir löngu orðin sígild í jólaplötusögu Íslands en nokkur laga hennar voru svo endurútgefin á lítilli skífu árið 1973 af SG-hljómplötum.
Hljómsveit Óskars Guðmundssonar starfaði til ársins 1969 en þá flutti hljómsveitarstjórinn til Svíþjóðar, nokkuð hafði þá hallað undan fæti í vinsældum hjá sveitinni enda höfðu þá bæði bítla- og blómabarnakynslóðir leyst gömlu dansana af hólmi. Sveitin kom þó saman á nýjan leik árið 1997 og kætti gamla aðdáendur.














































