Afmælisbörn 15. nóvember 2024

Richard Scobie

Tveir tónlistarmenn koma við afmælissögu Glatkistunnar í dag:

Richard Scobie sem helst er þekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Rikshaw er sextíu og fjögurra ára gamall. Scobie söng einnig með hljómsveitum eins og Spooky boogie, Beaverly brothers, The Boy brigade og Loðinni rottu. Hann hefur einnig gefið út sólóplötu og hefur skotið upp kollinum bæði í Landslagskeppninni og Söngvakeppni Sjónvarpsins.

Kristinn Jón Arnarson bassaleikari fagnar fimmtíu og eins árs afmæli í dag. Kristinn Jón er bassaleikari Soma sem gaf út plötuna Föl og gerði lagið Grandi Vogar II vinsælt árið 1997. Kristinn hefur einnig verið í sveitum eins og Systur guðs, Stolið, Kósínus, Skrýtnum, Sauðfé á mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur, Fjöll og Slow montains.

Vissir þú að hljómsveitin Fantasía með Selmu Björns í fararbroddi gaf út smáskífu á vínyl þar sem aðra hliðina þurfti að spila á 45 snúningum en hina á 33 snúningum?