Harmonikku- og trommuleikarinn Sigurður Valgarður Jónsson (Siggi Valli) starfrækti hljómsveit á Akureyri sumarið 1956 en þá lék sveit hans, Hljómsveit Sigurðar V. Jónssonar fyrir dansi á útidansleik á Ráðhústorginu.
Ekki er að finna neinar frekari heimildir um þessa hljómsveit, um aðra meðlimi hennar og hljóðfæraskipan og er því hér með óskað eftir þeim upplýsingum.
Sigurður var hugsanlega einnig með hljómsveit í sínu nafni árið 1958.














































