Afmælisbörn 19. desember 2024

Ómar Diðriksson

Á þessum degi eru fimm afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Ómar Diðriksson trúbador og hárskeri er sextíu og tveggja ára á þessum degi. Hann hefur starfrækt eigin sveitir, Síðasta sjens, Tríó Ómars Diðrikssonar og Sveitasyni, en hefur einnig gefið út nokkrar sólóplötur og í samstarfi við Karlakór Rangæinga. Hann býr nú í Noregi

Gréta Sigurjónsdóttir gítarleikari Dúkkulísanna frá Egilsstöðum er fimmtíu og níu ára gömul í dag, Gréta er auðvitað þekktust fyrir framlag sitt með Dúkkulísunum sem sigruðu Músíktilraunir árið 1983 en hún hefur starfað að mestu fyrir austan og þá með sveitum eins og Teppinu hennar tengdamömmu, Ökklabandinu, Bergmáli, Hljómsveit Hreggviðs Jónssonar, XD3 og Nefndinni svo nöfn séu nefnd. Gréta sendi frá sér plötuna Glópagull árið 2000 og er enn að vinna tónlist.

Páll Ivan frá Eiðum eða Páll Ivan Slamnig Pálsson fagnar fjörutíu og þriggja ára afmæli sínu á þessum degi. Páll Ivan sem er bassaleikari í grunninn hefur komið víða við í tónlistarsköpun sinni, hann nam í Bretlandi en hefur starfað með hljómsveitum á borð við Stórsveit Nix Noltes, Benn Hemm Hemm, Fersteini Spuna de la Cruz og Doom svo nokkur nöfn séu nefnd en hann hefur einnig sent frá sér sólóplötur. Þá var hann einn af stofnendum S.l.á.t.u.r.

Þá á bassaleikarinn Snorri Hergill Kristjánsson stórafmæli eða fimmtugs afmæli á þessum degi en hann lék hér forðum á bassa með ýmsum misþekktum sveitum s.s. The Eighties (síðar Moonboots), Zorglúbb, Kalk og Klamedíu X.

Að síðustu er hér nefndur trommuleikarinn Sigfús (Örn) Óttarsson (Fúsi Óttars) frá Akureyri en hann er fimmtíu og sjö ára gamall í dag. Sigfús vakti fyrst athygli með Baraflokknum en hefur síðan þá leikið með fjöldanum öllum af þekktum og óþekktum hljómsveitum, þar á meðal má nefna Rikshaw, Dægurlagapönksveitina Húfu, PKK, Jagúar, Alvöruna, Brimkló og KK-band en þó eru aðeins hér örfáar upptaldar.

Vissir þú að Brother Grass sigraði jólalagakeppni Rásar 2 árið 2010 með lagið Jól?