
Jón Ingi Júlíusson
Aðfangadagur jóla hefur að geyma fimm tónlistartengd afmælisbörn:
Jóhann R. Kristjánsson tónlistarmaður frá Egilsstöðum er sextíu og þriggja ára gamall í dag. Jóhann er ekki þekktasti tónlistarmaður þjóðarinnar en plata hans, Er eitthvað að? frá árinu 1982 hefur öðlast költ-sess meðal poppfræðinga og plötusafnara. Á sínum tíma galt platan afhroð gagnrýnenda en hefur nú fengið uppreisn æru, og er í dag eftirsóttur safngripur.
Jón Ingi Júlíusson harmonikkuleikari átti afmæli á þessum degi. Jón Ingi sem var fæddur árið 1932 var virkur félagsmaður í Félagi harmonikuunnenda í Reykjavík, lék með hljómsveit félagsins og á plötum hennar, og var jafnframt formaður félagsins um tíma – þá starfrækti hann einnig hljómsveit í eigin nafni um árabil. Jón Ingi lést árið 2020.
Heimir Sindrason tannlæknir á einnig afmæli í dag – stórafmæli reyndar því hann er áttræður. Heimir átti stuttan en gæfuríkan feril sinn sem tónlistarmaður um tvítugt er hann starfrækti þjóðlagadúettinn Heimir og Jónas ásamt Jónasi Tómassyni á meðan þeir voru við nám við Menntaskólann í Reykjavík, þeir gáfu út tvær breiðskífur en Heimir hefur einnig gefið út tvær sólóplötur síðan, um og eftir síðustu aldamót. Þess má geta að Heimir samdi lagið Hótel jörð við ljóð Tómasar Guðmundssonar.
(Reynir) Máni Orrason tónlistarmaður er tuttugu og sjö ára gamall á þessum degi. Hann hefur sent frá sér tvær sólóplötur og fjölda smáskífna, þá fyrstu er hann var einungis sextán ára gamall. Máni hefur búið og starfað á Spáni lengstan hluta ævi sinnar.
Og að síðustu er hér nefnd kanadíska tónlistarkonan Rex Beckett en hún er þrjátíu og níu ára gömul í dag. Rex Beckett hefur búið hér á landi í um árabil og var söngkona hljómsveitarinnar Antimony en hefur einnig komið fram undir aukasjálfinu Rex Pistols (áður Discipline) og gefið út plötur undir því nafni.
Vissir þú að Heims um ból hefur komið út á plötu í meðförum Strumpanna?














































