Hljómsveit Gunnars Hallgrímssonar (1944-45)

Gunnar Hallgrímsson Sandholt rafvirki á Ísafirði starfrækti sjö manna hljómsveit í sínu nafni um eins árs skeið að minnsta kosti 1944 til 45 en sveit hans kom í nokkur skipti fram opinberlega, lék þá í tengslum við leiksýningar Leikfélags Ísafjarðar en einnig undir söng Sunnukórsins á tónleikum kórsins og á almennum skemmtunum.

Gunnar sem einnig stjórnaði Lúðrasveit Ísafjarðar um svipað leyti, lék á fiðlu í sveit sinni en aðrir meðlimir hennar voru Ingvar Jónasson fiðluleikari, Guðmundur Finnbjörnsson fiðluleikari (síðar saxófónleikari), Áslaug Jóhannsdóttir [?], Daníel Sigmundsson [?], Sigmundur Guðmundsson [?] og Harry Herlufsen píanóleikari.

Hljómsveit Gunnars Hallgrímssonar starfaði fram undir mitt ár 1945 hið minnsta.