Afmælisbörn 31. desember 2024

Gísli Þór Gunnarsson

Eitt afmælisbarn kemur við sögu á þessum síðasta degi ársins:

Gísli Þór Gunnarsson trúbador (G.G. Gunn) er sextíu og sex ára gamall í dag, Gísli er ef til vill ekki meðal þekktustu tónlistarmanna Íslands en eftir hann liggur þó fjöldi útgáfa í formi kassettna. Gísli starfaði um tíma sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi en hefur líklega lítið sinnt tónlistinni síðustu áratugina.

Vissir þú að Sniglabandið með Stefán Hilmarsson í fararbroddi lék á áramótadansleik á Þórshöfn á Langanesi um áramótin 1985-86 en það var aðeins í annað skipti sem sveitin kom fram undir því nafni.