
Felix Bergsson
Þá er nýtt ár gengið í garð og Glatkistan hefur fjögur tónlistartengd afmælisbörn á takteinum á þessum fyrsta degi ársins:
Felix Bergsson söngvari, leikari og fjölmiðlamaður á fimmtíu og átta ára afmæli á þessum degi. Felix vakti fyrst athygli í uppfærslu Verzlunarskóla Íslands á söngleiknum Rocky horror, varð síðar söngvari Greifanna sem sigraði Músíktilraunir vorið 1986, vann að barnaefni ásamt Gunnari Helgasyni og hóf enn síðar sólósöngferil eftir að hafa menntað sig í leiklist, hann hefur sent frá sér tvær breiðskífur.
Tónlistarmaðurinn og ljóðskáldið Gísli Þór Ólafsson frá Sauðárkróki sem einnig gengur undir nafninu Gillon, fagnar í dag fjörutíu og sex ára afmæli sínu. Undir Gillon nafninu hefur Gísli Þór sent frá sér nokkrar sólóplötur þar sem hann syngur og leikur á hin ýmsu hljóðfæri en hann hefur jafnframt starfað með hljómsveitinni Contalgen funeral þar sem hann leikur á bassa.
Þá hefði Ólafur Magnússon frá Mosfelli einnig átt afmæli í dag en hann lést 1991. Ólafur sem var kunnur bassasöngvari úr Mosfellsdalnum fæddist 1910, söng með ýmsum karlakórum á höfuðborgarsvæðinu og í Mosfellssveit, og oft sem einsöngvari. Hann hélt þó ekki einsöngstónleika fyrr en hann gaf út fyrstu plötu sína, Ég lít í anda liðna tíð, þá var hann orðinn sjötíu og fimm ára gamall.
Og að síðustu er hér nefndur verslunar- og tónlistaráhugamaðurinn Gísli Jónsson sem var uppi á árunum 1871 til 1938 en hann er þekktastur á tónlistarsviðinu fyrir að stofna þrjár lúðrasveitir, þær störfuðu á Eyrarbakka, Vík í Mýrdal og Borgarnesi þar sem hann starfaði og bjó.
Vissir þú að Ragnar Bjarnason rak um skeið bílasölu í eigin nafni?














































