
Hólmfríður Benediktsdóttir
Hólmfríður Benediktsdóttir hefur sett mikinn svip á tónlistarstarf í S-Þingeyjarsýslum síðustu áratugina, bæði sem söngkona og kórstjórnandi en hún hefur stjórnað ógrynni kóra af ýmsu tagi, einkum barnakórum í gegnum tíðina.
Hólmfríður Sigrún Benediktsdóttir er fædd 1950 – hún er Húsvíkingur að uppruna en fór suður til Reykjavíkur, fyrst í kennara- og tónmenntakennaranám og svo í söng- og píanónám og nam þá hjá Elísabetu Erlingsdóttur og Guðrúnu A. Kristinsdóttur en hún lauk burtfararprófi árið 1980.
Á námsárunum í Reykjavík stjórnaði hún kór í fyrsta sinn en þar var um að ræða söngkór innan Stýrimannaskólans (1974) en það er eini karlakórinn sem hún hefur stjórnað, hún hóf svo fljótlega að stjórna barnakór á Húsavík og átti eftir að stjórna mörgum slíkum kórum nyrðra. Eftir námið hóf Hólmfríður að kenna við Tónlistarskólann á Húsavík og mun þá einnig hafa samhliða kórstjórnun barnakórsins stjórnað Lúðrasveit Húsavíkur um hríð, hún varð síðan skólastjóri tónlistarskólans og sat reyndar einnig um tíma í stjórn Tónlistarfélags Húsavíkur sem þarna hafði verið stofnað.
Hólmfríður tók strax virkan þátt einnig í sönglífi Þingeyinga, söng með Kór Húsavíkurkirkju og söng þá oft einsöng með þeim kór, um það leyti tók hún einnig þátt í starfi leikfélagsins á staðnum með undirleik á píanó auk þess að leika undir söng á almennum tónlistarsamkomum á píanó og jafnvel gítar. Hún var undir lok áttunda áratugarins nokkuð farin að koma fram sem einsöngvari ásamt undirleikara í heimabyggð og síðar einnig víðar um Norðurlandið, t.a.m. á Akureyri og Sauðárkróki ásamt fleirum undir yfirskriftinni Norðlenskir tónar (1985). Hún stjórnaði ennfremur æskulýðskór við Húsavíkurkirkju og þegar kvennakórinn Lissý var stofnaður árið 1985 varð hún fyrsti stjórnandi kórsins og stjórnaði honum um tveggja ára skeið en hún átti svo eftir að stjórna honum aftur síðar, aukinheldur stjórnaði hún líklega um tíma kór Framhaldsskólans á Húsavík.
Um miðjan níunda áratuginn hóf Hólmfríður að mennta sig frekar í sönglistinni en hún var þá í framhaldsnámi í söng í Bandaríkjunum og fór þangað reglulega yfir sumartímann, því námi lauk hún með Mastersgráðu í söng sumarið 1990 frá Indiana Univerity Bloomington. Um það leyti var hún jafnframt farin að raddþjálfa t.a.m. hjá Samkór Húsavíkur og halda utan söngnámskeið m.a. fyrir Passíukórinn á Akureyri og það sama haust hóf hún einnig að kenna við Tónlistarskólann á Akureyri samhliða tónlistarkennslu á Húsavík og var því með mörg járn í eldinum.

Hólmfríður Benediktsdóttir
Í kjölfarið kom Hólmfríður enn meira fram sem einsöngvari, bæði með hinum ýmsu kórum s.s. Passíukórnum á Akureyri og Karlakór Akureyrar – Geysi, og svo sem einsöngvari ýmist á eigin árlegum einsöngstónleikum á Akureyri og Húsavík þar sem hún vann mikið með undirleikaranum Helgu Bryndísi Magnúsdóttur eða með öðrum einsöngvurum, og svo á stærri uppákomum eins og óperuuppfærslum á Önnu Bolena (1992) og Ástardrykknum (1993), og tónleikum tileinkuðum aldarafmæli Björgvins Guðmundssonar tónskáld svo dæmi séu nefnd, og söng hún bæði norðan heiða og sunnan.
Hólmfríður var lengst af tíunda áratugarins á þeytingi milli Akureyrar og Húsavíkur til að sinna störfum sínum, hún byrjaði með barnakór við Akureyrarkirkju sem hún stjórnaði í nokkur ár, stjórnaði um tíma einnig Kór Menntaskólans á Akureyri og stofnaði Stúlknakór Húsavíkur. Unglingakór Borgarhólsskóla á Húsavík starfaði einnig um skeið undir hennar stjórn og jafnframt stjórnaði hún kvennakórnum Lissý aftur rétt eins og á upphafsárum hans.
Þegar leið nær aldamótum minnkaði Hólmfríður heldur við sig vinnu, hún var þó lengst með Stúlknakór Húsavíkur og fór með honum erlendis í ferðir auk þess að halda utan um plötuútgáfu með kórnum, þá stjórnaði hún endurreistum Samkór Húsavíkur á nýrri öld og var áfram dugleg að koma fram sem einsöngvari. Hún hélt upp á 30 ára kórstjórnarafmæli árið 2004 og hélt upp á það m.a. með því að vera söngstjóri í uppfærslu Tónlistarskólans á Húsavík á Vesalingunum ásamt því að syngja eitt aðal hlutverkanna.

Hólmfríður Benediktsdóttir árið 2000
Hólmfríður hélt áfram að mennta sig í sönglistinni þrátt fyrir að vera komin á sextugs aldur og árið 2007 lauk hún framhaldsnámi í rythmískum söng við Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn en því námi hafði hún sinnt í staðbundnum lotum í Danmörku. Hún hélt þó áfram að starfa við kór- og söngstjórn næstu árin þó hún væri á þeim tímapunkti töluvert farin að minnka við sig, hún annaðist m.a. söngstjórn í uppfærslu Framhaldsskólans á Húsavík á Kardemommubænum og stjórnaði stúlknakórnum sínum áfram allt til 2014 þegar dóttir hennar, Ásta Magnúsdóttir tók við kórstjórninni. Hólmfríður var þó ekki alveg hætt kórstjórnun því árið 2016 hóf hún að stýra Kvennakór Húsavíkur sem var stofnaður það sama ár og einnig stjórnaði hún til margra ára Sólseturskórnum svokallaða, kór eldri borgara á Húsavík. Hún stjórnaði þeim kórum líklega til vorsins 2024 þegar hún hætti allri kórstjórn, komin fast að 75 ára aldri. Hér er þó væntanlega ekki allt upp talið sem kemur að söng- og kórstjórnunarferli Hólmfríðar, frekari upplýsingar vantar t.a.m. um þau tímaskeið sem hún mun hafa starfað í Kópavogi og á Akranesi við söng- og tónlistarkennslu.
Hólmfríður Benediktsdóttir hefur verið heiðruð fyrir störf sín að tónlistarmálum, það var m.a. gert á Landsmóti barnakóra árið 2015 en hún hefur einnig verið gerð að heiðursfélaga í Heiltóni – hollvinasamtökum Tónlistarskólans á Húsavík, fyrir framlag sitt til sönglistarinnar.














































