
Hreinn Halldórsson
Sjö tónlistarmenn koma við afmælissögu Glatkistunnar í dag
Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöngvari er sextíu og þriggja ára gamall í dag en hann nam söng hér heima, í Þýskalandi og Sviss, og starfaði erlendis þar til hann sneri heim til Íslands. Hér heima hefur hann lítið fengist við söng síðustu árin, starfar sem yfirtollvörður en hefur reyndar kennt við Söngskóla Sigurðar Demetz.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarmaður, upptökustjóri og útsetjari svo fátt eitt sé nefnt, er fimmtíu og níu ára gamall í dag. Þorvaldur er þekktastur sem einn Todmobile-liða en hefur einnig fengist við upptökur, útsetningar, tónsmíðar og annars konar spilamennsku. Hann hefur t.d. þrívegis samið Eurovision framlög Íslands. Hann starfar nú sem tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar.
Jón Valur Guðmundsson trommuleikari á einnig afmæli á þessum degi en hann er þrjátíu og sjö ára gamall. Jón Valur hefur leikið á trommur með hljómsveitum eins og Big Kahuna, Who knew og Krónu, og sjálfsagt eru sveitirnar mun fleiri en hér eru upptaldar.
Tónlistarmaðurinn Guðmundur Steinn Gunnarsson fagnar fjörutíu og þriggja ára afmæli sínu. Hann hefur leikið á gítar með ótal hljómsveitum á sínum ferli og hér má nefna sveitir eins og Hestbak, Farmerana, Kuai, Njúton, Ferstein Stórsveit Nix Noltes og Hljómsveit Benna Hemm Hemm. Hann hefur einnig sent frá sér sólóefni.
Harmonikkuleikarinn og kúluvarparinn Hreinn Halldórsson eða Strandamaðurinn sterki eins og hann var oft kallaður hér áður, er sjötíu og sex ára í dag. Hreinn sneri sér að harmonikkuleik eftir íþróttaferil sinn og hefur verið virkur í því félagsstarfi austur á Héraði, samið lög og texta og unnið til verðlauna á því sviði.
Fiðluleikarinn Gréta Guðnadóttir á sextíu og tveggja ára afmæli á þessum degi. Gréta nam fiðluleik hér heima og í Bandaríkjunum og hefur reyndar doktorsgráðu í fræðunum. Hún hefur leikið lengi með Sinfóníuhljómsveit Íslands en einnig með Caput hópnum og öðrum kammersveitum, og þá hefur hún jafnframt leikið inn á ógrynni platna t.a.m. með léttari tónlist í popp- og rokkgeiranum.
Óperusöngvarinn Guðmundur Guðjónsson hefði einnig átt afmæli í dag en hann lést árið 2016. Guðmundur sem var fæddur 1922, var tenórsöngvari sem byrjaði ekki að læra söng fyrr en um fertugt og var nokkuð áberandi á söngsviðinu enda telst hann vera af fyrstu kynslóð óperusöngvara hérlendis. Hann átti mikið og gott samstarf við Sigfús Halldórsson og gaf út tvær plötur í samstarfi við hann.
Vissir þú að Hljómar léku á sínum tíma fyrir vistfólk á Grund?














































