Halim (2000-01)

Halim

Hljómsveitin Halim úr Hafnarfirði vakti nokkra athygli árið 2001 þegar hún hafnaði í öðru sæti Músíktilrauna en söngvari og gítarleikari sveitarinnar, Ragnar Sólberg Rafnsson var jafnframt kjörinn besti söngvari tilraunanna. Aðrir liðsmenn Halim voru þeir Hörður Stefánsson gítarleikari, Sigurður Á. Gunnarsson og Egill Rafnsson trommuleikari bróðir Ragnars en þeir bræður eru synir tónlistarmannsins Rafns Jónssonar – Rabba. Sveitin hafði verið stofnuð árið 2000 upp úr hljómsveitinni Egosmile og svo virðist sem annar trommuleikari, Magnús F. Unnarsson hafi verið í Halim í upphafi.

Halim hélt spilamennsku áfram eftir Músíktilraunirnar og fljótlega bættist þriðji gítarleikarinn í sveitina, Baldvin Freyr [?]. Sveitin lék töluvert um sumarið, m.a. á styrktartónleikum á Gauknum fyrir Rabba en sveitin var þá jafnframt á kafi í hljóðversvinnu.

Afrakstur hljóðversvinnunnar kom út um haustið en sveitin hafði þá breytt um nafn þar sem Halim nafnið þótti ekki alveg viðeigandi – tengt þekktri forræðisdeilu um það leyti, og hét hún Sign eftir það. Platan – Vindar og breytingar, kom því út í nafni þeirrar sveitar.