
Una Sveinbjarnardóttir
Á þessum degi eru átta afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Hreiðar Ingi Þorsteinsson tónskáld frá Stykkishólmi er fjörutíu og sjö ára gamall í dag, hann hefur samið fjöldann allan af lögum, t.d. fyrir Pál Óskar og Moniku Abenroth en einnig kom út plata með Hólmfríði Jóhannesdóttur þar sem hún söng lög Hreiðars. Hreiðar er einnig menntaður píanóleikari og tónmenntakennari, hann hefur stjórnað Kór Verzlunarskóla Íslands og sungið sjálfur í kórum og sönghópum eins og Laugarárskvartettnum og Vox fox.
Óbóleikarinn Eydís (Lára) Franzdóttir á sextíu og tveggja ára afmæli á þessum degi. Eydís nam óbóleik hér heima og í London og hefur leikið með hljómsveitum og tónlistarhópum á borð við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput-hópnum, hljómsveit Íslensku óperunnar og Hnúkaþey svo dæmi séu nefnd og leikið á tónleikum sem einleikari hér heima og víða erlendis. Óbóleik hennar má jafnframt heyra á fjölmörgum plötum.
Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari fagnar í dag fimmtug afmæli sínu. Una sem nam hér heima og í Þýskalandi er konsertmeistari Kammersveitar Reykjavíkur og hefur einnig m.a. starfað með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Hljómsveit Íslensku óperunnar og Útvarpshljómsveitinni í Berlín. Þá hefur Una jafnframt leikið inn á fjölda útgefinna platna bæði í klassísku og popp/rokk deildinni.
Söngkonan Ylfa Mist Helgadóttir er fimmtíu og eins árs gömul í dag. Ylfa Mist sem kemur upphaflega frá Dalvík, hefur starfað með hljómsveitum eins og Skriðunum en einnig sungið inn á fjölmargar plötur, og hún á jafnframt að baki eina sólóplötu sem kom út árið 2012 og ber nafn hennar
Kristján Hrannar Pálsson píanó- og saxófónleikari er þrjátíu og átta ára gamall í dag. Kristján Hrannar hefur sent frá sér nokkrar sólóplötur síðustu árin en hann hefur einnig starfað með fjölda hljómsveita í gegnum tíðina s.s. Tvær á palli með einum kalli / Fjögur á palli, Danna og dixielanddvergunum, 1860 og Loftvörnum. Hann hefur jafnframt leikið inn á fjölda platna á ferli sínum.
Þórður Kristleifsson söngvari, kórstjórnandi og menntaskólakennari (fæddur 1897) hefði líka átt afmæli á þessum degi. Hann stýrði mörgum kórum, m.a. Kór Menntaskólans að Laugarvatni og var mikill brautryðjandi í tónlistarlífi skólans. Þórður náði 104 ára aldri en hann lést 1997.
Jón Múli Árnason (fæddur 1921) sá mikli djassisti, tónlistarmaður, útvarpsþulur, rithöfundur, tónskáld og margt annað átti einnig afmæli þennan dag. Hann kynnti Íslendingum djasstónlistina að miklu leyti í gegnum starf sitt í útvarpinu og samdi mörg lög og söngleiki í samstarfi við Jónas bróður sinn. Sjómenn íslenskir erum við, Án þín, Undir Stórasteini og Söngur jólasveinanna eru allt lög eftir hann. Jón Múli lést 2002.
Að síðustu er hér nefndur Sveinbjörn Kristmundur Dýrmundsson en hann fagnar sjötíu og fimm ára afmæli á þessum degi. Sveinbjörn lék á árum áður á bassa með hljómsveitum á borð við Rain, Beatniks, Bláberjabandinu, Nesmönnum og Lexíu auk hljómsveitar í eigin nafni, Hljómsveit Sveinbjörns Dýrmundssonar.
Vissir þú að Prím – fyrstu plötu saxófónleikarans Jóels Pálssonar var dreift í 40 löndum?














































