
Hróðmundur hippi 1993
Hróðmundur hippi var hljómsveit úr Garðabæ og var nokkuð virk meðan hún starfaði, sem var á árunum 1992 og 93.
Hróðmundur hippi var líkast til stofnuð 1992 og lék hún þá í nokkur skipti opinberlega bæði í heimabæ sínum en einnig t.d. á tónleikum ungsveita í félagsmiðstöðinni Fellahelli í Breiðholti. Ekki er að finna neinar upplýsingar um meðlimaskipan sveitarinnar þá en líklega var Telma Ágústsdóttir söngkona þá í sveitinni, hún átti nokkrum árum síðar eftir að skipa dúettinn Einar Ágúst & Telma sem flutti Eurovision framlag Íslands – Tell me (2000).
Sveitin var svo meðal þátttökusveita í Músíktilraunum Tónabæjar vorið 1993 og lék þá það sem skilgreint var sem hipparokk en sveitin var á þeim tíma skipuð þeim Hrafnkeli Pálmarssyni gítarleikara, Guðna Tómassyni söngvara, Sigurgeiri Agnarssyni bassaleikara, Haraldi A. Leifssyni trommuleikara og Þórhalli Bergmann hljómborðsleikara, Telma var þá hætt. Hróðmundi gekk prýðilega í tilraununum, komst í úrslit keppninnar og hafnaði svo að lokum í fjórða sæti hennar. Sveitin hlaut að launum tuttugu hljóðverstíma og hljóðritaði nokkur lög, sem hafa þó líklega aldrei komið út. Hróðmundur hippi starfaði eitthvað áfram eftir Músíktilraunir og lék áfram á tónleikum en virðist svo hafa hætt störfum síðar þetta sama ár 1993.
Fleiri meðlimir sveitarinnar en Telma áttu eftir að vekja athygli því Þórhallur Bergmann hljómborðsleikari (Vínyll, Jetz, Lace o.fl.), Sigurgeir bassaleikari (sellóleikari), og Hrafnkell gítarleikari (Í svörtum fötum o.fl.) áttu allir eftir að starfa sem tónlistarmenn.














































