Afmælisbörn 27. maí 2025

Hrólfur Gunnarsson

Fimm afmælisbörn koma við sögu á afmælislista Glatkistunnar að þessu sinni:

Gunnar Ólason söngvari og gítarleikari Skítamórals frá Selfossi er fjörutíu og níu ára gamall á þessum degi. Auk þess að vera einn af Skímó-liðum hefur hann leikið með sveitum eins og Vinum Sjonna, Galeiðunni, Plasti, Spark, Loðbítlum, Nepal og Poppins flýgur. Auk þess var Gunnar annar helmingur dúettsins Two tricky sem var fulltrúi Íslands í Eurovision 2001.

Tónlistarmaðurinn Helgi Örn Pétursson fagnar stórafmæli – fimmtugs afmæli í dag. Helgi Örn hefur leikið á bassa og gítar með ýmsum rokksveitum í gegnum tíðina og hér eru nefndar nokkrar hljómsveitir eins og Múldýrið, Singapore Sling, Osmē, Psychadelic Zündmachine og Carpe Diem.

(Jón) Hrólfur Gunnarsson trommuleikari á ennfremur sjötíu og þriggja ára afmæli á þessum degi. Hrólfur lék á trommur með fjölmörgum þekktum hljómsveitum hér í eina tíð og hér má nefna sveitir eins og Júbó, Júdas, Hróka, Paradís, Steinblóm, Fresh og Geimstein en auk þess hefur hann leikið inn á fjölda hljómplatna.

Gullý Hanna (Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir) er sjötíu og sex ára gömul í dag en hún hefur starfað í Danmörku síðan um miðjan áttunda áratuginn og sent frá sér fjölmargar plötur sem innihalda eins konar poppaða vísnatónlist. Gullý Hanna hefur sungið bæði á íslensku og dönsku á plötum sínum og má t.a.m. heyra á þeim lög eins og Hægt og hljótt og Söknuður, með dönskum textum.

Og að síðustu er hér nefndur Örnólfur Thorlacius raftónlistarmaður en hann er fjörutíu og sex ára gamall á þessum degi. Örnólfur hefur mest starfað einn í þessum geira tónlistarinnar en einnig eitthvað í samstarfi með öðru tónlistarfólki, hann hefur gefið út efni og gengið undir ýmsum nöfnum s.s. Ozy/Ozzy, Figment creepers, Early grooves, Hugh Jazz, Fuzzball reject o.fl.

Vissir þú að Todmobile sendi frá sér breiðskífu samnefnda sveitinni á ensku?