Afmælisbörn 7. júlí 2025

Börkur Hrafn Birgisson

Sex tónlistarmenn eiga afmæli í dag og eru á skrá Glatkistunnar:

Aðalbjörn Tryggvason söngvari og gítarleikari Sólstafa er fjörutíu og átta ára gamall í dag, Sólstafir hefur starfað síðan 1995 og liggja vel á annan tug útgáfa eftir sveitina. Sólstafir er þó ekki eina sveitin sem Aðalbjörn starfar með því hann hefur einnig leikið með Melrökkum sem einkum hafa sérhæft sig í tónlist Metallica.

Annar gítarleikari og söngvari á afmæli í dag, Vignir Snær Vigfússon jafnan kenndur við Írafár, er fjörutíu og sex ára gamall. Vignir sem kemur upphaflega frá Kirkjubæjarklaustri, hefur leikið með ýmsum hljómsveitum s.s. Fljótinu sem rann, Dægurlagakombóinu, Rokk, The Painted lady project og Vinum Sjonna sem kepptu fyrir hönd Íslendinga í Eurovision 2011, Vignir hefur reyndar oftar farið sem einn af fulltrúum Íslands í keppnina. Vignir hefur ennfremur starfað við upptökur og útsetningar auk þess að hafa samið fjöldann allan af þekktum lögum.

Þriðji gítarleikarinn, Ómar Guðjónsson er fjörutíu og sjö ára í dag – hann hefur starfað með ógrynni hljómsveita sem margar hverjar eru djasstengdar, þetta eru sveitir eins og Carnival, Djassband Eyjólfs, Drangar, Ebeneser, Jagúar, Íslandssögur, Hljóð í skrokkinn, Áhöfnin á Húna II, Sycamore tree, Mímir, Nesi, Sjana og hinar kellingarnar, Geislar, Funkmaster 2000 o.m.fl. en hann hefur jafnframt starfrækt eigin sveitir og gefið út nokkrar sólóplötur auk þess að leika á plötum fjölda annarra listamanna.

(Örvarr) Atli Örvarsson hljómborðsleikari og kvikmyndatónskáld frá Akureyri er fimmtíu og fimm ára gamall í dag. Atli var áberandi um og upp úr 1990 er hann lék með sveitum eins og Sálinni hans Jóns míns og SSSól en áður hafði hann slegið í gegn með Stuðkompaníinu. Atli flutti síðan vestur um haf og hefur á síðustu árum haslað sér völl sem kvikmyndatónskáld og samið tónlist fyrir fjölda þekktra kvikmynda og sjónvarpssería.

Börkur Hrafn Birgisson gítarleikari (sá fjórði á þessum degi) og upptökumaður á ennfremur afmæli í dag en hann á stórafmæli dagsins, er fimmtugur. Hann hefur leikið með hljómsveitum eins og Baggabandinu, Jagúar og Mono town en hefur á síðari árum snúið sér í auknum mæli að upptökustjórnun og annarri hljóðversvinnu.

Að síðustu er hér nefndur tónlistarmaðurinn Unnsteinn Ólafsson (1966-2024) sem hefði átt afmæli á þessum degi. Unnsteinn var trommuleikari hljómsveitarinnar Hekkenfeld sem sendi frá sér plötur á sínum tíma en hann vann einnig að tónlist sjálfur undir nafninu Unnso music. Unnsteinn bjó og starfaði í Danmörku en hafði sungið með kórum hér heima á Íslandi áður.

Að XXX Rottweiler (áður 101 Rottweiler) var fyrsta rappsveitin sem sigraði Músíktilraunir?