
Frá Hæfileikakeppni Tómstundaráðs Kópavogs
Tómstundaráð Kópavogs stóð um árabil fyrir hæfileikakeppni fyrir ungt fólk sem var líklega fyrsta keppni sinnar tegundar hérlendis, sem átti sér fastan sess í bæjarlífinu en Kópavogur var á þeim tíma ungur bær með hátt hlutfall ungs fólks, keppnin var alla tíð haldin í Kópavogsbíói (Félagsheimili Kópavogs).
Hæfileikakeppnin var fyrst haldið vorið 1973 og voru keppnisatriðin alla tíð með fjölbreyttu sniði, allt frá upplestri á frumsömdum ljóðum og smásögum til leik-, dans- og tónlistaratriða en slík tónlistaratriði voru algengust, þar var bæði um einstaklinga og hópa (hljómsveitir, sönghópa o.s.frv.) að ræða og meðal þátttakenda og sigurvegara má sjá ýmis nöfn sem síðar urðu þekktar stærðir í íslenskri tónlist – yfirleitt virðast atriðin hafa verið um tíu eða fleiri.
Ekki finnast heimildir og upplýsingar um alla sigurvegara hæfileikakeppninnar en hér má nefna að Kristján Hreinsson úr Þinghólsskóla (síðar þekkt ljóðskáld og tónlistarmaður) sigraði 1974 með flutningi á frumsömdum ljóðum, Eine kleine Nachtmusik á munnhörpu og frumsömdum lögum leikin á píanó og orgel. Tryggvi J. Hübner gítarleikari sigraði keppnina 1975, Stífgrím kombóið 1980 og 1982 voru fjögur atriði efst og jöfn, m.a. MK kvartettinn og hljómsveitin Te fyrir tvo. Meðal annarra hljómsveita og sönghópa sem hafa verið meðal þátttakenda má nefna Hattímas, Hlekki, X-ið, DRON, Opinberun og Sunnan fjórir.

Ungir keppendur í Kópavogi
Framan af var hæfileikakeppnin með því sniði að þrenn verðlaun væru veitt og öll atriðin féllu undir sama flokk, síðar voru verðlaun veitt sérstaklega fyrir frumsamið efni. Jafnframt var aldurstakmörkunum breytt á þann veg að fyrst var miðað við fólk á grunnskólaaldri en síðar var keppnin auglýst fyrir ungt fólk á aldrinum 12 til 28 ára – flestir voru þó á aldrinum 12 til 20 ára. Einhverju sinni var keppnin fellt inn í dagskrá Listavöku Kópavogs en það var líklega bara einu sinni.
Svo virðist sem Hæfileikakeppni Tómstundaráðs Kópavogs hafi verið árviss viðburður í Kópavogi á árunum 1973 til 1982 en þá verið hætt, hins vegar var hún aftur haldin árið 1990 svo ekki er ljóst hvort um var að ræða stakan viðburð eða hvort saga sé þarna á milli.














































