Hörmung [3] (2013-15)

Hörmung

Rokkhljómsveitin Hörmung starfaði á Ísafirði á árunum 2013 til 2015 hið minnsta, hugsanlega hefur hún verið stofnuð fyrr.

Meðlimir sveitarinnar voru þeir Einar Bragi Guðmundsson gítarleikari, Brynjar J. Olsen gítarleikari, Egill Bjarni Vikse hljómborðsleikari [og söngvari?], Slavyan Yordanov bassaleikari og Valgeir Skorri Vernharðsson trommuleikari. Sveitin var nokkuð virk meðan hún starfaði og lék í fjölmörg skipti fyrir vestan s.s. á tónlistarhátíðunum Aldrei fór ég suður og Þorskinum en einnig á hátíðum eins og Dýrafjarðardögum á Þingeyri og Skíðaviku Ísfirðinga. Þá lék sveitin í nokkur skipti í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Haustið 2013 var sveitin meðal keppenda í undankeppni Söngkeppni framhaldsskólanna í Menntaskólanum á Ísafirði og lenti þar í þriðja sæti og einnig kepptu þeir félagar í hljómsveitakeppninni Eflum íslenskt tónlistarlíf 2014 sem fram fór á Gauki á Stöng en sveitin fór í nokkur skipti suður til höfuðborgarsvæðisins til að spila. Þá kom Hörmung fram í útvarpsþættinum Skúrinn á Rás 2.

Vorið 2014 hætti Brynjar gítarleikari í Hörmung en ekki liggur fyrir hver eða hvort einhver tók sæti hans í sveitinni, sveitin starfaði líklega fram á haustið 2015 og virðist þá hafa hætt störfum.