Afmælisbörn 15. september 2025

Hörn Hrafnsdóttir

Þrjú afmælisbörn í tónlistargeiranum eru á skrá Glatkistunnar í dag:

Tónlistarmaðurinn Sigfús E. Arnþórsson er sextíu og átta ára gamall í dag. Sigfús lék með fjölda hljómsveita á árum áður, einkum norðanlands en það voru sveitir eins og Skýborg, Anus, Klassík, Namm, Tíglar, Árný trúlofast, Flugfrakt, Skarr og Mörðuvallamunkarnir en einnig hefur hann gefið út sólóplötur. Hann er þó líklega þekktastur fyrir að hafa samið lagið Endurfundir sem Upplyfting gerði vinsælt hér í eina tíð.

Þá fagnar básúnu- og slagverksleikarinn Oddur Björnsson sextíu og sex ára afmæli sínu í dag. Oddur er af básúnuættum, hann nam hér heima og í Bandaríkjunum og hefur leikið með stærri hljómsveitum sem minni s.s. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Básúnukvartettnum, Létt- og stórsveit Ríkisútvarpsins, Big band ´81 og Hljómskálakvintettnum svo nokkrar séu nefndar en leik hans má einnig heyra á tugum hljómplatna.

Og að síðustu er hér nefnd messósópran söngkonan Hörn Hrafnsdóttir en hún fagnar fimmtíu og þriggja ára afmæli á þessum degi. Hörn hefur sungið einsöng á tónleikum hér á landi og víða erlendis, meðal annars á hádegistónleikum og ljóðatónleikum. Þá hefur hún einnig starfað með sönghópum eins og Sopranos og ÓP-hópinn, sem töluvert kvað að um tíma.