
Hilmar Jensson
Tvö tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag:
Hilmar Jensson gítarleikari er fimmtíu og níu ára gamall á þessum degi. Hilmar sem hefur síðustu árin fyrst og fremst starfað í djassgeiranum hefur gefið út nokkrar sólóplötur og með hljómsveitunum Tyft og Mógil en einnig hefur hann gefið út plötur í samstarfi við Skúla Sverrisson, Jóel Pálsson og fleiri. Áður hafði Hilmar starfað í hljómsveitum eins og The Spiders og Stjórninni en hann var einmitt einn af stofnmeðlimum síðast töldu sveitarinnar.
Þá er sópran söngkonan Sigurlaug Rósinkranz níræð í dag en það er auðvitað stórafmæli. Sigurlaug nam hér heima og í Austurríki en vakti fyrst athygli fyrir hlutverk í Brúðkaupi Fígarós í Þjóðleikhúsinu en það vakti miklar deilur á sínum tíma. Síðar bjó hún í Svíþjóð og Bandaríkjunum þar sem hún er ennþá, en hún hefur gefið út nokkrar plötur með söng sínum.














































