
Alexandra Baldursdóttir
Afmælisbörn dagsins eru fimm talsins á skrá Glatkistunnar:
Óttarr Ólafur Proppé fyrrverandi alþingismaður og söngvari Ham, Funkstrasse, Rass, Dr. Spock, Drullu o.fl. er fimmtíu og sjö ára gamall á þessum degi. Margir þekkja hann einnig sem prófessorinn á Diskóeyjunni og enn fleiri muna eftir honum í bakraddahlutverki í Eurovision keppninni með Pollapönkurunum.
Alexandra Baldursdóttir gítarleikari hljómsveitarinnar Mammút á þrjátíu og sex ára afmæli í dag. Mammút hefur gefið út nokkrar plötur en sveitin hefur hvarvetna hlotið góðar viðtökur fyrir plötur sínar, þess má geta að Alexandra hefur starfað í Mammút í um helming ævi sinnar sem þó er ekki ýkja löng.
Óðinn G. Þórarinsson lagahöfundur og harmonikkuleikari fagnar níutíu og þriggja ára afmæli í dag. Óðinn gerði garðinn frægan með hljómsveitum á Fáskrúðsfirði og á Akranesi hér áður fyrr en þekktastur er hann án nokkurs vafa fyrir að hafa samið lagið Nú liggur vel á mér. Árið 1997 sendi Hljómsveit Friðjóns Jóhannssonar frá sér plötuna Við tónanna klið en hún hafði að geyma nítján lög eftir Óðin.
Þá hefði Guðlaugur (Auðunn) Falk gítarleikari (f. 1959) átt afmæli í dag enn hann lést eftir veikindi árið 2017. Guðlaugur starfaði um ævi sína með mörgum rokkhljómsveitum, sumum í þyngri kantinum, og má m.a. nefna Exizt, Fist, Gildruna, Dark harvest, Stálfélagið og C.o.T. Hann gaf einnig út tvær sólóplötur.
Þá er hér að síðustu nefndur saxófón- og fiðluleikarinn Guðmundur (Ólafur) Finnbjörnsson (fæddur 1923) en hann rak hljómsveit í eigin nafni um langt árabil, þá lék hann einnig með hljómsveitum eins og Sextett Steinþórs Steingrímssonar, Hljómsveit Björns R. Einarssonar, Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar og Hljómsveit Svavars Gests. Guðmundur lést 2009.














































