Afmælisbörn 10. nóvember 2025

Gylfi Ægisson

Fimm tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:

Gylfi (Viðar) Ægisson söngvari, gítar- og harmonikkuleikari, sprellari, söngleikjahöfundur, útgefandi, laga- og textasmiður  (1946-2025) hefði átt afmæli á þessum degi en hann lést nýverið, hann starfaði lengstum sem sólólistamaður og gaf út fleiri tugi platna sem slíkur en vann einnig með GRM, Áhöfninni á Halastjörnunni o.fl. Gylfi samdi ódauðlega smelli eins og Minning um mann og Í sól og sumaryl.

Kormákur Geirharðsson verslunarmaður, kráareigandi og trommuleikari þekktra hljómsveita eins og Q4U, Langa Sela og skugganna, Hringja, Ikarusar, KK-bands og Oxzmá svo fáeinar sveitir séu upp taldar, fagnar sextíu og tveggja ára afmæli sínu á þessum degi.

Gunnar Ben (Benediktsson) sem kunnastur er fyrir veru sína í hljómsveitinni Skálmöld er fjörutíu og níu ára gamall í dag. Gunnar leikur þar á hljómborð og óbó (og syngur) en hefur einnig leikið og verið viðloðandi sveitir eins og Hraun og Ljótu hálfvitana, auk þess að hafa spilað inn á fjölda platna með hinum og þessum. Hann hefur jafnframt annast kórstjórn, m.a. með Vocal Project o.fl.

Einnig hefði Steinþór Stefánsson bassaleikari og ljóðskáld frá Akureyri átt afmæli á þessum degi en hann lést á sviplegan hátt árið 1988, hann lék með fjölda hljómsveita á sínum tíma og hér má nefna sveitir eins og Q4U, Parror, Snillingana, Síhanouk, Joð-ex, Lost, Kvöl nágrannans, Akureyrar-útlagana og Fræbbblana en sú síðast talda var auðvitað þeirra þekktust. Steinþór var fæddur 1961.

Að síðustu er hér nefndur Atli Guðlaugsson sem ýmist er titlaður trompetleikari eða kórstjórnandi en hann er sjötíu og tveggja ára gamall í dag. Atli hefur stjórnað sönghópum og kórum eins og Galgopum, Grundartangakórnum og karlakórnum Stefni, og einnig starfað með Borgarkvartettnum, Hljómsveit Karls Jónatanssonar og Tindatríóinu auk þess að stjórna Lúðrasveit Akureyrar og Stórsveit Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð svo dæmi séu nefnd.