
Guðni Finnsson
Á þessum degi eru afmælisbörn Glatkistunnar sex talsins:
Guðni (Þórarinn) Finnsson bassaleikari Ensímis er fimmtíu og fimm ára gamall í dag. Auk þess að vera bassaleikari í Ensími hefur Guðni leikið með hljómsveitum eins og Áhöfninni á Húna II, Bikarmeisturunum, Dr. Spock, Rass, Pondus, Hispurslausa kvartettnum og mörgum fleirum. Guðni hefur meira að segja farið sem einn af fulltrúum Íslands í Eurovision keppnina þegar hann var í Pollapönks-liðinu.
Rúnar Örn Friðriksson er fimmtíu og sjö ára gamall á þessum degi. Rúnar Örn söng með hljómsveitinni Sixties sem gaf út fjölmargar plötur en hann hefur einnig sungið með sveitum eins og Jötunuxum, U3 project, Fullu tungli, Kinkí, Flower power og Drykkjum innbyrðis.
Bassaleikarinn og fyrrverandi borgarfulltrúinn S. Björn Blöndal er fimmtíu og sex ára í dag, hann er kunnastur fyrir spilamennsku í hljómsveitinni Ham en hefur einnig starfað með sveitum eins og Funkstraβe, Gáfnaljósunum, Drullu og Rass, með síðast töldu sveitinni var hann reyndar gítarleikari.
Tónlistarmaðurinn Einar Örn Jónsson frá Blönduósi er fimmtugur í dag og það er auðvitað stórafmæli. Einar Örn sem fyrst vakti athygli með hljómsveitinni Sónötu sem gaf út plötu með lagasmíðum hans, varð síðar hljómborðsleikari með hljómsveitinni Í svörtum fötum sem gerði garðinn frægan um og upp úr aldamótum en lék síðar með Veðurguðunum, Löðri og fleiri sveitum, og hefur leikið inn á fjölda platna.
Rafn Jónsson (Rabbi) trommuleikari, lagahöfundur, plötuútgefandi og margt annað, hefði líka átt afmæli þennan dag en hann lést 2004 úr MND sjúkdómnum. Rabbi (fæddur 1954) lék með ógrynni hljómsveita á sínum ferli en þekktustu sveitir sem hann lék með voru Sálin hans Jóns míns, Bítlavinafélagið, Grafík, Ýr og Haukar. Rabbi gaf einnig út nokkrar sólóplötur og plötur í félagi við aðra, þar sem fjölmörg lög hans nutu vinsælda.
Og að lokum er hér nefndur harmonikkuleikarinn Villi frá Karlsá eða Vilhelm Jónatan Guðmundsson (fæddur 1937). Hann var kunnur nikkuleikari sem lék reyndar á fleiri hljóðfæri, og rak hljómsveitir í eigin nafni í um fjóra áratugi (með hléum) en starfaði auk þess með mörgum öðrum hljómsveitum, þar má nefna IRA tríóið, Mána, Tríó ´72, Hljómsveit Jóhannesar Eggertssonar og Tónatríó. Vilhelm lést árið 2013.














































