Eftir sex ára hlé snýr íslenska indí hljómsveitin Youyou aftur með nýtt lag, Towns. Með þeim í þetta sinn er Biggi Nielsen, einn reyndasti trommari landsins og vel þekkt nafn í íslenskri tónlistarsenu.
Lagið á sér langa sögu og var bjargað úr lagasafni Youyou af Bigga Nielsen, sem lengi hefur starfað eftir mottóinu að klára lög áður en ný verða til. Towns er nú loksins komið í loftið og er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum s.s. Spotify.
Tónlist Youyou er afslöppuð og melódísk indítónlist, en í Towns bætist við skýr kántríáhrif. Þar koma við sögu Sigurgeir Sigmundsson (lap steel) og Friðrik G. Sturluson (bassi) úr hinni rómuðu íslensku kántrýhljómsveit Klaufum, sem gefur laginu hlýjan og lífrænan blæ.
Towns er rólegt, vel mótað lag sem sameinar ólíka strauma íslenskrar tónlistar á náttúrulegan hátt og markar kærkomna endurkomu Youyou eftir langt hlé.
Youyou skipa á smáskífunni þeir Snorri Gunnarsson söngvari og gítarleikari, Guðmundur Annas Árnason söngvari og píanóleikari og Valur Freyr Einarsson gítarleikari, auk þeirra Birgis Nielsen trommuleikara, Sigurgeirs Sigmundssonar lap steel gítarleikara oog Friðriks Sturlusonar bassaleikara, aukinheldur annast Kristinn Jón Arnarson andlega leiðsögn. Um upptökur sáu Valur og Snorri en hljómblöndun var í höndum Gísla Stefánssonar.














































