Afmælisbörn 30. október 2026

Jón Jónsson

Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar:

Hafnfirðingurinn Jón Ragnar Jónsson eða bara Jón Jónsson fagnar fjörutíu og eins árs afmæli sínu á þessum degi. Jón skaust fram á sjónarsviðið með hljómsveit sinni árið 2010 sem einmitt hét Jón Jónsson, og í kjölfarið hófst sólóferill hans með plötunni Wait for fate ári síðar en síðan hafa nokkrar slíkar litið dagsins ljós. Undanfarin ár hefur hann einnig slegið í gegn me Iceguys sönghópnum.