GG BLÚS og BLÁA BRASSIÐ á Ægi 220

Nafnarnir Guðmundur Jónsson gítarleikari og Gunnlaugsson trommuleikari í GG BLÚS ætla að halda tónleika á Ægi 220 í Hafnarfirði þann 6. nóvember n.k.

Og til að gera þetta ennþá skemmtilegra ætla þeir félagar að fá til liðs við sig BLÁA BRASSIÐ, þriggja manna brassband skipað afburðar tónlistarmönnum, sem eru;
Steinar Sigurðarson – tenór saxófónn
Snorri Sigurðarson – trompet
Haukur Gröndal – baríton saxófónn

Þetta er dulítið öðruvísi nálgun á blúsrokkið en vant er og eru allir forvitnir hvattir til að mæta og eiga góðar stundir með GG BLÚS og BLÁA BRASSINU á Ægi þetta föstudagskvöld kl. 21:00.

Að gefnu tilefni ber að minna á að miðar eru seldir í forsölu á stubb.is