Það styttist í hina árlegu tónlistarhátíð Iceland Airwaves en hátíðin í ár er sú tuttugasta og sjöunda í röðinni.
Airwaves var haldin í fyrsta sinn haustið 1999 og var þá haldin í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli, en henni hefur vaxið ásmegin með hverju árinu og tónlistaratriðum fjölgað eftir því. Hátíðin er nú haldin á sex mismunandi stöðum, Kolaportinu, Lemmy, Ráðhúsinu, Iðnó, Fríkirkjunni og Rosenberg en auk þess er fjöldinn allur af off venue viðburðum um allan bæ.
Iceland Airwaves hófst með nokkrum viðburðum fyrr í dag en á morgun – fimmtudag byrjar formleg dagskrá á fyrrgreindum tónleikastöðum og stendur allt fram til sunnudagskvölds. Hátíðinni fylgja einnig nokkrir stærri viðburðir sem selt er sérstaklega inn á og hér má nefna tónleika Daða Freys og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á fimmtudagskvöldið í Eldborgarsal Hörpu.
Glatkistan verður á ferðinni með myndavélina á lofti eins og síðustu ár, og mun miðla myndefni frá hátíðinni á Facebook síðu sinni og víðar.
Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar í ár.














































