Tóft gefur út smáskífuna Samofin

Sunnlenska hljómsveitin Tóft sendi frá sér smáskífu nú fyrir helgi en hún ber heitið Samofin og var tekin upp Stúdíó Paradís.

Tóft skipa þeir Þórir Ófeigsson söngvari og bassaleikari, Gústav Ásbjörnsson gítarleikari, Ingólfur Arnar Þorvaldsson trommuleikari og Hreinn Óskarsson söngvari og gítarleikari. Þeir félagar fengu til liðs við sig engan annan en Pétur Hjaltested sem leikur á Hammond orgel í laginu en Ingólfur stjórnaði upptökum.

Tóft hefur á undanförnum árum unnið að gerð breiðskífu, í ágúst kom einnig út lag sem ber titilinn Í nótt en Samofin er fimmta lagið sem sveitin hljóðritar. Hér er hægt að heyra smáskífuna sem og önnur lög sem sveitin hefur fullunnið.