Tiltekt í tenglasafninu

Um þessar mundir stendur yfir tiltekt í tenglasafni Glatkistunnar en þar voru flestir tenglar orðnir óvirkir enda var listinn unninn um það leyti sem vefsíðan opnaði (haustið 2014) og aldrei verið uppfærður.

Nýr listi með tengla á tónlistarfólk, hljómsveitir og tengt efni hefur því litið dagsins ljós, mikið vantar þó á þann lista og verður hann uppfærður í skömmtum á næstunni – það tónlistarfólk sem myndi vilja hafa nafn sitt og tengil á Glatkistunni getur því haft samband í gegnum póstfangið helgi@glatkistan.com með upplýsingar um vefslóð.