Hæfileikakeppni Dagblaðsins og Hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar [tónlistarviðburður] (1979-80)

Frá hæfileikakeppni Dagblaðsins 1979

Sumrin 1979 og 1980 var tvívegis haldin hæfileikakeppni þar sem fólki var gefinn kostur á að sýna hæfileika sína á ýmsum sviðum en keppnin var haldin í nafni Hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar og Dagblaðsins á Hótel Sögu.

Það mun hafa verið Birgir Gunnlaugsson sem fékk hugmyndina að hæfileikakeppninni og var Dagblaðið tilbúið í samstarf við hann og fengu staðarhaldara á Hótel Sögu til að hýsa keppnina. Keppnin var með þeim hætti að fólk sem hafði ekki beina atvinnu að listsköpun gat látið ljós sitt skína í henni og í fréttatilkynningu tengdri keppninni var það orðað á þennan hátt: „Ertu söngvari, leikari, eftirherma, galdrakarl, rithöfundur, skáld, nú eða lagahöfundur eða textahöfundur, sem enn hefur ekki getað komið hæfileikum þínum á framfæri?“, en aldurstakmarkið var 18 ár. Framkvæmd keppninnar var að mestu í höndum Birgis og hljómsveitar hans en Dagblaðið sá um að miðla fréttum og auglýsingum af henni.

Fyrirkomulag keppninnar var með þeim hætti að þrír keppendur komu fram hvert undankvöld á Hótel Sögu sumarið 1979, sem upphaflega stóð til að yrðu tólf talsins en þau urðu reyndar ekki alveg svo mörg – hljómsveit Birgir lék undir þeim atriðum sem þurfti en fjölmargir keppenda léku sjálfir á hljóðfæri. Einnig komu fram þekkt listafólk í keppninni sem gestir s.s. dansflokkur frá JSB og þekktir söngvarar. Aðalverðlaun keppninnar var utanlandsferð fyrir tvo en einnig hlutu sigurvegarar hvers undankvölds verðlaun í formi málsverðar á Grillinu á Hótel Sögu. Síðara árið sem keppnin var haldin (1980) voru undankvöldin fleiri og þá voru einnig haldnar undankeppnir á Akureyri og Hofsósi og þá var hluti af dagskránni uppfærsla hljómsveitar Birgis (og fleiri) á söngleiknunm Evitu, þá stóð til að halda slíka keppni í Borgarnesi einnig en ekki varð úr því. Síðara sumarið var gefið í skyn að sigurvegari keppninnar myndi koma fram í sjónvarpsþættia á BBC í tengslum við svipaða keppni (í nafni Ringo Starr) en úr því varð ekki.

Jóhann Hilmisson sigurvegari keppninnar ásamt Ásgeiri Tómassyni frá Dagblaðinu

Svo fór að flest atriðanna voru tónlistartengd en einnig komu fram í henni atriði á borð við eftirhermur, hjólað á einhjóli, jóðl og upplestur á smásögum og ljóðum. Áhorfendur sáu um að kjósa sigurvegara undankvöldanna en í úrslitunum síðsumars var einnig þriggja manna dómnefnd sem hafði helmingsvægi á móti áhorfendum.

Sigurvegari keppninnar sumarið 1979 var Páll Jóhannesson tenórsöngvari að norðan sem fór í söngnám í kjölfarið og gaf síðar út plötur, en 1980 sigraði Jóhannes Hilmisson sem um svipað leyti var að koma fram á Vísnakvöldum Vísnavina og söng síðan inn á plötu þeirra. Auk þeirra var meðal keppenda fjölmargt tónlistarfólk sem síðar átti eftir að láta ljós sitt skína í tónlistinni og hér má nefna Kristján Hreinsson, Inga Gunnar Jóhannsson, Árna Sighvatsson, Hilmar Gunnarsson, Garðar Harðar, Margréti Sighvatsdóttur og Elsu Waage. Þá má nefna að Andrea Gylfadóttir lék á fiðlu í tónlistarhópnum Brotnum bogum frá Akranesi sem hafnaði í öðru sæti keppninnar 1980 en alls munu á annað hundrað keppenda hafa látið ljós sitt skína í keppninni þau tvö skipti sem hún fór fram. Margir þeirra komu fram á fjölmörgum skemmtunum og uppákomum víðs vegar um land eftir keppnina.

Hæfileikakeppni Hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar og Dagblaðsins naut töluverðra vinsælda og athygli, og mæting var með ágætum á keppniskvöldunum, en af einhverjum ástæðum var hún ekki haldin oftar.