
Heimir – Söngmálablað
Heimir – Söngmálablað var tímarit sem fjallaði um söngmál og önnur tónlistartengd málefni og kom út á árunum 1935-39 en því var ætlað að halda áfram með það sem samnefnt tímarit hafði hafið á árunum 1923-26, þ.e. að miðla upplýsingum og fræðslu um málefnið.
Heimir – Söngmálablað kom fyrst út sumarið 1935 og var Páll Ísólfsson fyrsti ritstjóri þess, blaðið var frá upphafi veglegt og fór upp í fjörutíu blaðsíðna rit þegar mest var en fjögur tölublöð komu út á ári. Baldur Andrésson varð síðar ritstjóri blaðsins en einnig segja heimildir að Páll Halldórsson og Salómon Heiðar hafi gegnt því starfi.
Síðasta tölublað Heimis kom út 1939 en þá hafði mikið til fjarað undan því og var það aðeins tólf blaðsíður að lengd.














































