Heimskir synir (2002-04)

Heimskir synir

Hip hop sveitin Heimskir synir kom fram á sjónarsviðið í upphafi aldarinnar en sveitin kom úr Kópavoginum og var líklega stofnuð árið 2002. Í upphafi árs 2003 var sveitin meðal fleiri slíkra sem komu fram á Allra veðra von tónleikunum sem haldnir voru í Vestmannaeyjum, þar stóð sveitin sig það vel að ákveðið var að hún yrði meðal skemmtiatriða á Þjóðhátíð Eyjamanna um verslunarmannahelgina síðar það ár.

Í mars voru Heimskir synir svo meðal þátttökusveita í Músíktilraunum, meðlimir sveitarinnar voru þá rappararnir Daníel Þór Bjarnason, Birkir Jakob Hansen og Stefán Þór Kristinsson auk söngkonunnar Ástu Maríu Harðardóttur, auk þess sáu þeir Daníel Þór og Birkir Jakob um að vinna undirleikinn. Sveitin komst í úrslit keppninnar, hafði þar reyndar ekki erindi sem erfiði en vakti nokkra athygli fyrir lag sitt – Steinhaltu kjaftu, sem kom út á plötunni Músíktilraunir 2003 sem gefin var út að keppninni lokinni.

Sveitin starfaði að minnsta kosti eitthvað fram eftir árinu 2004.