Heklukvartettinn var lítil hljómsveit sem sett var sérstaklega saman fyrir svokallað heimsmót æskunnar sem haldið var í Vínarborg í Austurríki sumarið 1959 en Íslendingar tóku þátt í slíkum mótum í nokkur skipti um miðja síðustu öld, um áttatíu Íslendingar voru þar fulltrúar þjóðarinnar.
Heklukvartettinn var skipaður þeim Jóni Páli Bjarnasyni gítarleikara, Ólafi Stephensen harmonikku- og píanóleikara, Sigurbirni Ingþórssyni bassaleikara og Hauki Morthens söngvara en tveir þeir síðast töldu höfðu verið í hljómsveit Gunnars Ormslev sem unnið hafði til gullverðlauna á sambærilegu móti í Moskvu fáum árum áður. Heklukvartettinn vann ekki til slíkra verðlauna í Austurríki og komst reyndar ekki í úrslit keppninnar en sveitin lék alls fjórum sinnum í ferðinni og svo á einum dansleik í Framsóknarhúsinu eftir að heim var komið.














































