
Hestaleigan
Hljómsveitin Hestaleigan var meðal keppnissveita í Músíktilraunum Tónabæjar vorið 1989, sveitin var frá Akranesi og voru meðlimir hennar þeir Jón Ingi Þorvaldsson bassaleikari, Þorbergur Auðunn Viðarsson söngvari, Bjarni Þór Hjaltason trommuleikari, Þóroddur Bjarnason gítarleikari og Finnur Guðmundsson hljómborðsleikari. Sveitin komst ekki áfram í úrslit keppninnar.
Hestaleigan kom aftur saman tíu árum síðar þegar sveitin hitaði upp fyrir Skagasveitina Abbababb á tónleikum, þeir Þóroddur, Þorbergur og Jón Ingi voru þá enn meðal meðlima en í stað hinna tveggja voru þeir Logi Guðmundsson og Gautur Gunnlaugsson.














































