Hljómskálinn í Stykkishólmi [tónlistartengdur staður] (1957-)

Turninn á gamla bókasafninu rétt áður en hann var rifinnfrá

Lúðrasveit Stykkishólms hafði starfað í ríflega áratug árið 1957 og verið á hrakhólum með æfingahúsnæði þegar henni bauðst gamla bókasafnshúsið sem stóð á Þinghúshöfðanum í bænum til eignar gegn því að fjarlægja það af lóðinni en til stóð að reisa þar nýtt bókasafn.

Þá um haustið var farið í verkefnið, turn áfastur húsinu var rifinn frá og húsið síðan flutt að Silfurgötu 7 þar sem það reis á nýjum grunni sem var nokkuð stærri en bókasafnshúsið hafði verið og var húsið því stækkað og reyndar einnig sniðið að nútímanum. Meðlimir lúðrasveitarinnar unnu að byggingu hússins í sjálfboðavinnu og var því lokið um 1964 enda var fjármagn af skornum skammti til efniskaupa og því ekki hægt að vinna hraðar.

Húsið sem hlaut nafnið Hljómskálinn varð í kjölfarið æfingahúsnæði og félagsheimili Lúðrasveitar Stykkishólms en auk þess fengu önnur félagasamtök og hópar þar inni til hvers kyns félagsstarfa, þar var tónlistarskólinn í Stykkishólmi þegar hann tók til starfa að einhverju leyti til húsa og þar voru einnig haldnir tónleikar á vegum skólans og sjálfsagt lúðrasveitarinnar einnig.

Hljómskálinn áður en húsið var flutt á nýja staðinn

Hljómskálinn stendur enn við Silfurgötu og má muna sinn fífil fegurri en það hefur nokkuð látið á sjá, þar hefur leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi haft aðstöðu síðustu árin eftir því sem best verður séð en lúðrasveitin hefur fyrir löngu flutt sig í Tónlistarskóla Stykkishólms.