
Hljómsveit Hauks Þorsteinssonar
Hljómsveit Hauks Þorsteinssonar var aðal hljómsveit Sauðkrækinga á sjöunda áratug síðustu aldar en hún var eins konar hlekkur á milli H.G. kvartetts Harðar Guðmundssonar og Falcon áður en Geirmundar þáttur Valtýssonar hófst. Sveitin lék á dansleikjum og var fastur liður í Sæluviku Skagfirðinga um árabil.
Haukur Þorsteinsson stofnaði sveit sína líklega árið 1958 eða 59 en hann hafði áður starfað með H.G. kvartett á Króknum, ekki liggur fyrir hverjir skipuðu sveit hans í upphafi en heimildir um sveitina segja hana fyrst hafa komið fram á vormóti ungra sjálfstæðismanna í Húnaveri 1959. Sveitin lék á almennum dansleikjum í heimahéraði við miklar vinsældir, bæði minni og stærri slíkum og lék einnig á þorrablótum og landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal svo dæmi séu nefnd, þá mun sveitin hafa leikið á dansleikjum tendum Sæluviku Skagfirðinga meðan hún starfaði en hún var starfrækt allt til haustsins 1966.
Eðli málsins samkvæmt var Haukur sjálfur alla tíð í sveitinni en hann var söngvari hennar auk þess sem hann lék á saxófón – þess má geta að hann var bróðir Erlu Þorsteins söngkonu. Jónas Þór Pálsson var líklega alla tíð trommuleikari hljómsveitarinnar og hér er giskað á að Valgeir Kárason hafi verið fyrsti bassaleikari hennar, Gunnar Páll Ingólfsson gítarleikari og Sigmundur Júlíusson píanóleikari. Árið 1961 gekk Sveinn Ingason gítarleikari til liðs við sveitina og gæti þá hafa tekið við keflinu af Gunnari Páli, og jafnframt tók Hafsteinn Hannesson við bassanum á einhverjum tímapunkti.

Hljómsveit Hauks árið 1966
Árið 1965 voru í hljómsveitinni Haukur söngvari og saxófónleikari, Hafsteinn bassaleikari, Jónas Þór trymbill, Sveinn gítarleikari og Sigurður Angantýrsson orgelleikari en auk þess söng Halla Soffía Jónasdóttir með sveitinni þá og hafði þá gert um skeið. Þá um haustið (1965) tók ungur gítarleikari, Geirmundur Valtýsson við af Sveini og þannig starfaði sveitin til haustsins 1966 þegar Haukur ákvað að leggja hana niður en hann sá þá fram á að hljómsveit af því tagi ætti ekki framtíð fyrir sér í samkeppni við hinar svokölluðu bítlasveitir.
Félagar hans héldu samstarfinu hins vegar áfram undir nafninu Flamingo og starfaði sú sveit í nokkur ár á eftir. Haukur og Halla voru söngvarar sveitarinnar lengst af en einnig söng Óli Ólafsson með henni um tíma síðasta árið sem hún starfaði, þá má geta þess að Sigurður Ólafsson söngvari úr Reykjavík söng með sveitinni á að minnsta kosti einni Sæluviku.














































