Hljómsveit Hauks Þorvaldssonar [1] (1960-64)

Hljómsveit Hauks Þorvaldssonar 1960

Lítið er vitað um Hljómsveit Hauks Þorvaldssonar (hina fyrri) en hún starfaði líkast til á Eskifirði á árunum 1960 til 64.

Haukur þessi Þorvaldsson var líklega aðeins 17 ára þegar hann stofnaði sveitina ásamt bróður sínum Ellerti Borgari Þorvaldssyni en sveitin mun hafa verið sextett, ekki liggur fyrir hverjir aðrir skipuðu hana en söngvarar hennar voru áðurnefndur Ellert Borgar og Hansína [Halldórsdóttir?].

Þessi sveit lék víða um Austfirði, og m.a. í Egilsbúð í Neskaupstað í nokkur skipti en upplýsingar um hana eru afar takmarkaðar og er því hér með óskað eftir þeim – einkum er varða meðlima- og hljóðfæraskipan hennar og svo auðvitað starfstíma.

Haukur átti síðar eftir að starfrækja aðra sveit í sínu nafni á Höfn í Hornafirði.