Mjög lítið liggur fyrir um Hljómsveit Herberts Sveinbjörnssonar en sú sveit starfaði í Vestmannaeyjum á sjötta áratug liðinnar aldar, á árunum 1952 til 60 að því er heimildir herma – ólíklegt er þó að þessi sveit hafi starfað samfleytt á þeim tíma.
Hermann Sveinbjörnsson var harmonikkuleikari en lék reyndar á fleiri hljóðfæri, en engar upplýsingar er að finna um hverjir voru meðspilarar hans í þessari hljómsveit og á hvað þeir spiluðu nema að Gísli H. Brynjólfsson gæti hafa verið gítarleikari hannar – og er því óskað eftir þeim upplýsingum.














































